Bílastæði við Glerárskóla, Klappir og Árholt

Málsnúmer 2023120628

Vakta málsnúmer

Fræðslu- og lýðheilsuráð - 44. fundur - 18.12.2023

Lagt fram bréf dagsett 5. desember 2023 frá stjórn foreldrafélags Glerárskóla sem og ódagsett bréf foreldraráðs Klappa vegna bílastæðamála við Glerárskóla, Klappir og Árholt.


Áheyrnarfulltrúar: Anna Lilja Sævarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Anna Bergrós Arnarsdóttir fulltrúi grunnskólastjóra, Hanna Dóra Markúsdóttir fulltrúi grunnskólakennara, Harpa Hjartardóttir fulltrúi leikskólakennara, Helga Jónasdóttir fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Helena Kristín Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna og Lilja Dögun Lúðvíksdóttir fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð tekur undir áhyggjur stjórnar foreldrafélags Glerárskóla sem og foreldraráðs Klappa og vísar erindinu til umhverfis- og mannvirkjaráðs.

Ungmennaráð - 46. fundur - 10.01.2024

Ungmennaráð tók fyrir bréf frá stjórn foreldrafélags Glerárskóla og foreldraráði Klappa vegna bílastæðamála við Glerárskóla, Klappir og Árholt. Ungmennaráð sendi frá sér bókun um málið.
Ungmennaráð tekur undir áhyggjur foreldrafélaganna og skorar á umhverfis- og mannvirkjaráð að ráðast í aðgerðir til að tryggja öryggi barna á svæðinu.

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 153. fundur - 16.01.2024

Liður 3 í fundargerð fræðslu- og lýðheilsuráðs dagsettri 18. desember 2023:

Lagt fram bréf dagsett 5. desember 2023 frá stjórn foreldrafélags Glerárskóla sem og ódagsett bréf foreldraráðs Klappa vegna bílastæðamála við Glerárskóla, Klappir og Árholt.

Áheyrnarfulltrúar: Anna Lilja Sævarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Anna Bergrós Arnarsdóttir fulltrúi grunnskólastjóra, Hanna Dóra Markúsdóttir fulltrúi grunnskólakennara, Harpa Hjartardóttir fulltrúi leikskólakennara, Helga Jónasdóttir fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Helena Kristín Gunnarsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna og Lilja Dögun Lúðvíksdóttir fulltrúi ungmennaráðs.

Fræðslu- og lýðheilsuráð tekur undir áhyggjur stjórnar foreldrafélags Glerárskóla sem og foreldraráðs Klappa og vísar erindinu til umhverfis- og mannvirkjaráðs.
Umhverfis- og mannvirkjaráð felur umhverfis- og mannvirkjasviði að kanna möguleika til úrbóta á umferðaröryggi við Glerárskóla, Klappir og Árholt. Slíkir möguleikar verði ræddir við starfsfólk og fulltrúa foreldra nemenda í skólunum.