Bæjarstjórn

3332. fundur 18. desember 2012 kl. 16:00 - 17:05 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson forseti bæjarstjórnar
  • Inda Björk Gunnarsdóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Oddur Helgi Halldórsson
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Tryggvi Þór Gunnarsson
  • Edward Hákon Huijbens
  • Logi Már Einarsson
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Sigurður Guðmundsson
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss
Dagskrá
Edward Hákon Huijbens V-lista mætti í forföllum Andreu Sigrúnar Hjálmsdóttur, Njáll Trausti Friðbertsson D-lista mætti í forföllum Ólafs Jónssonar og Silja Dögg Baldursdóttir L-lista mætti í forföllum Hlínar Bolladóttur.

Forseti bar upp tillögu um að taka út úr 1. lið á dagskrá tillögu L-lista um b

1.Bæjarstjórn Akureyrar - breytingar í nefndum

Málsnúmer 2010060027Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga S-lista um breytingu á skipan aðalmanns í stjórn Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar:
Sveinn Arnarsson tekur sæti aðalmanns í stjórn í stað Lindu Maríu Ásgeirsdóttur.

Lögð fram tillaga frá A-lista, B-lista, D-lista, S-lista og V-lista um breytingu á skipan aðalmanns og áheyrnarfulltrúa í bæjarráði svohljóðandi:
Sigurður Guðmundsson tekur sæti aðalmanns í stað Guðmundar Baldvins Guðmundssonar.
Guðmundur Baldvin Guðmundsson tekur sæti áheyrnarfulltrúa í stað Sigurðar Guðmundssonar.

 Bæjarstjórn samþykkir tillögurnar með 11 samhljóða atkvæðum.

2.Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA)

Málsnúmer 2012080060Vakta málsnúmer

2. liður í fundargerð félagsmálaráðs dags. 12. desember 2012:
Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldudeild kynnti reglur um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA). Málið var áður á dagskrá 28. nóvember 2012.
Félagsmálaráð samþykkir reglur um notendastýrða persónulega aðstoð og vísar þeim til bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir framlagðar reglur um notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) með 11 samhljóða atkvæðum.

3.Iðnaðarsvæði við Austursíðu - deiliskipulag

Málsnúmer 2012110215Vakta málsnúmer

2. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 12. desember 2012:
Í samræmi við bókun skipulagsnefndar dags. 28. janúar 2009 leggur skipulagsstjóri fram skipulagslýsingu vegna deiliskipulags iðnaðarsvæðis við Austursíðu. Skipulagslýsingin er unnin af Gísla Kristinssyni arkitekt frá Arkitektur.is og dags. 12. desember 2012.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulagslýsingin verði kynnt almenningi og leitað verði umsagnar Skipulagsstofnunar og annarra umsagnaraðila um skipulagslýsinguna.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.

4.Hrafnabjörg 1 - umsókn um deiliskipulagsbreytingu

Málsnúmer 2012050171Vakta málsnúmer

3. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 12. desember 2012:
Í samræmi við bókun skipulagsnefndar dags. 13. júní 2012, leggur Fanney Hauksdóttir arkitekt frá AVH ehf fram tillögu að deiliskipulagsbreytingu f.h. Viggós Benediktssonar. Tillagan er vegna breytinga á byggingarreit við lóðina nr. 1 við Hrafnabjörg og dags. 12. desember 2012.
Þar sem um óverulega breytingu á gildandi deiliskipulagi er að ræða leggur skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að tillagan verði grenndarkynnt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.

5.Rauðamýri 11 - umsókn um breytingu á deiliskipulagi

Málsnúmer 2012110021Vakta málsnúmer

4. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 12. desember 2012:
Í samræmi við bókun skipulagsnefndar dags. 14. nóvember 2012, leggur Gísli Kristinsson arkitekt frá Arkitektur.is ehf fram tillögu að deiliskipulagsbreytingu á deiliskipulagi Mýrarhverfis f.h. Þorsteins H. Vignissonar. Tillagan er vegna stækkunar bílgeymslu á lóðinni nr. 11 við Rauðumýri og dags. 7. desember 2012.
Þar sem um óverulega breytingu á gildandi deiliskipulagi er að ræða leggur skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að tillagan verði grenndarkynnt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.

6.Skammtímavistun fyrir fatlað fólk - reglur

Málsnúmer 2011010045Vakta málsnúmer

3. liður í fundargerð félagsmálaráðs dags. 12. desember 2012:
Anna Marit Níelsdóttir verkefnastjóri á búsetudeild kynnti reglur um afgreiðslu umsókna um skammtímavistun fyrir fatlað fólk.
Félagsmálaráð samþykkir reglur um afgreiðslu umsókna um skammtímavistun fyrir fatlað fólk og vísar þeim til bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir framlagðar reglur um afgreiðslu umsókna um skammtímavistun fyrir fatlað fólk með 11 samhljóða atkvæðum.

7.Siðareglur fyrir kjörna fulltrúa - seinni umræða

Málsnúmer 2009090017Vakta málsnúmer

1. liður í fundargerð bæjarstjórnar dags. 4. desember 2012:
2. liður í fundargerð bæjarráðs dags. 22. nóvember 2012:
Farið yfir siðareglur fyrir kjörna fulltrúa.
Bæjarráð vísar siðareglunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn (4. desember 2012) samþykkir framlagðar siðareglur fyrir kjörna fulltrúa með 11 samhljóða atkvæðum.

Bæjarstjórn samþykkir framlagðar siðareglur fyrir kjörna fulltrúa með 11 samhljóða atkvæðum.

8.Samþykkt um stjórn Akureyrarkaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar 2012 - seinni umræða

Málsnúmer 2012110101Vakta málsnúmer

5. liður í fundargerð bæjarstjórnar dags. 4. desember 2012:
1. liður í fundargerð bæjarráðs dags. 29. nóvember 2012:
Tekið fyrir að nýju, áður á dagskrá bæjarráðs 22. nóvember sl. en þá var lögð fram tillaga að breytingum á Samþykkt um stjórn Akureyrarkaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar tillögu að breytingum á Samþykkt um stjórn Akureyrarkaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum að vísa tillögunni til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Bæjarstjórn samþykkir framlagða Samþykkt um stjórn Akureyrarkaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar með 11 samhljóða atkvæðum.

9.Dagvist aldraðra

Málsnúmer 2012121055Vakta málsnúmer

4. liður í fundargerð félagsmálaráðs dags. 12. desember 2012:
Anna Marit Níelsdóttir verkefnastjóri á búsetudeild kynnti reglur um dagvist aldraðra hjá Akureyrarbæ.
Félagsmálaráð samþykkir reglur um dagvist aldraðra og vísar þeim til bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir framlagðar reglur um dagvist aldraðra með 11 samhljóða atkvæðum.

10.Skýrsla bæjarstjóra

Málsnúmer 2010090095Vakta málsnúmer

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri fór yfir helstu atriði í störfum sínum frá síðasta bæjarstjórnarfundi.
Að lokum tók forseti til máls og óskaði bæjarfulltrúum, starfsmönnum bæjarins, fjölskyldum þeirra og Akureyringum öllum nær og fjær gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Fyrir hönd bæjarfulltrúa þakkaði Guðmundur Baldvin Guðmundsson góðar óskir og óskaði forseta og fjölskyldu hans gleðilegra jól

Fundi slitið - kl. 17:05.