Hrafnabjörg 1 - umsókn um deiliskipulagsbreytingu

Málsnúmer 2012050171

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 139. fundur - 13.06.2012

Erindi dagsett 22. maí 2012 þar sem Viggó Benediktsson f.h. Höfðahúsa ehf., kt. 551105-0750, óskar eftir deiliskipulagsbreytingu á lóð nr. 1 við Hrafnabjörg vegna viðbyggingar við húsið og byggingar stakstæðrar bílgeymslu. Meðfylgjandi er grunnmynd og útlitsmyndir.

Skipulagsnefnd heimilar umsækjanda að leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi. Breytingin verði unnin í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd - 149. fundur - 12.12.2012

Í samræmi við bókun skipulagsnefndar dagsetta 13. júní 2012, leggur Fanney Hauksdóttir arkitekt frá AVH ehf. fram tillögu að deiliskipulagsbreytingu fh. Viggós Benediktssonar. Tillagan er vegna breytinga á byggingarreit við lóðina nr. 1 við Hrafnabjörg og dagsett 12. desember 2012.

Þar sem um óverulega breytingu á gildandi deiliskipulagi er að ræða leggur skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að tillagan verði grenndarkynnt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn - 3332. fundur - 18.12.2012

3. liður í fundargerð skipulagsnefndar dags. 12. desember 2012:
Í samræmi við bókun skipulagsnefndar dags. 13. júní 2012, leggur Fanney Hauksdóttir arkitekt frá AVH ehf fram tillögu að deiliskipulagsbreytingu f.h. Viggós Benediktssonar. Tillagan er vegna breytinga á byggingarreit við lóðina nr. 1 við Hrafnabjörg og dags. 12. desember 2012.
Þar sem um óverulega breytingu á gildandi deiliskipulagi er að ræða leggur skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að tillagan verði grenndarkynnt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.

Skipulagsnefnd - 151. fundur - 30.01.2013

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar var grenndarkynnt frá 19. desember 2012 með athugasemdarfresti til 16. janúar 2013.
Engin athugasemd barst.

Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna á grundvelli 4. gr.-e "Samþykktar um skipulagsnefnd" og felur skipulagsstjóra að annast gildistöku hennar.