Bæjarráð

3418. fundur 03. júlí 2014 kl. 09:00 - 12:23 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Matthías Rögnvaldsson
  • Sigríður Huld Jónsdóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Margrét Kristín Helgadóttir áheyrnarfulltrúi
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri
  • Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri ráðhúss ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss
Dagskrá
Sigríður Huld Jónsdóttir S-lista mætti í forföllum Loga Más Einarssonar.

1.Bæjarsjóður - yfirlit um rekstur 2014

Málsnúmer 2014050012Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit um rekstur aðalsjóðs frá janúar til maí 2014.

2.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2015 - 2018

Málsnúmer 2014060172Vakta málsnúmer

Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri lagði fram tillögu að fjárhagsáætlunarferli og tímaáætlun vegna vinnu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árin 2015-2018.

Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu um fjárhagsáætlunarferlið og tímaáætlun.

3.Viðauki við fjárhagsáætlun - leiðbeiningar

Málsnúmer 2013060110Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 18. júní 2014 frá innanríkisráðuneytinu um viðauka við fjárhagsáætlanir.

4.Útboð vöru og þjónustu - 2014

Málsnúmer 2013120175Vakta málsnúmer

Farið yfir fyrirhuguð útboð á árinu 2014.
Karl Guðmundsson mætti á fund bæjarráðs undir þessum lið.

5.Samþykktir fastanefnda endurskoðun 2014 - bæjarráð

Málsnúmer 2013060144Vakta málsnúmer

Unnið að endurskoðun samþykktar fyrir bæjarráð.

6.Bæjarstjórn Akureyrar - breytingar í nefndum 2014-2018

Málsnúmer 2014060234Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga um breytingu á skipan varamanns í stjórn Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar svohljóðandi:
Silja Dögg Baldursdóttir tekur sæti varamanns í stað Matthíasar Rögnvaldssonar.
Bæjarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í sumarleyfi bæjarstjórnar sbr. bókun í 3. lið fundargerðar bæjarstjórnar 1. júlí 2014.

Bæjarráð samþykkir tillöguna.

7.Kosning nefnda 2014-2018 - kjarasamninganefnd

Málsnúmer 2014060061Vakta málsnúmer

Kjarasamninganefnd: 3 aðalmenn og 3 til vara.
Fram kom tillaga með nöfnum þessara aðalmanna:

Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
Halla Björk Reynisdóttir varaformaður
Gunnar Gíslason

og varamanna:

Ingibjörg Ólöf Isakssen
Sigríður Huld Jónsdóttir
Margrét Kristín Helgadóttir

Bæjarráð samþykkir tillöguna. 

 

8.Félagið - tilnefning í stjórn

Málsnúmer 2014070014Vakta málsnúmer

Tilnefning í stjórn Félagsins sem er sameiginlegt félag Menningarfélagsins Hofs, Leikfélags Akureyrar og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands.
Bæjarráð tilnefnir Loga Má Einarsson sem aðalmann og Sædísi Gunnarsdóttur sem varamann í stjórn Félagsins.

9.Samband íslenskra sveitarfélaga - ósk um gerð kjarasamnings - félag sjúkraþjálfara

Málsnúmer 2014060235Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga um að Akureyrarbær óski eftir því við Samband íslenskra sveitarfélag að gerður verði kjarasamningur við félag sjúkraþjálfara.
Bæjarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í sumarleyfi bæjarstjórnar sbr. bókun í 3. lið fundargerðar bæjarstjórnar 1. júlí 2014.

Bæjarráð samþykkir tillöguna.

10.Samiðn - ósk um aðild Akureyrarbæjar að kjarasamningi Samiðnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga

Málsnúmer 2014060001Vakta málsnúmer

Erindi dags. 26. maí 2014 frá framkvæmdastjóra Samiðnar þar sem fram kemur ósk um aðild Akureyrarbæjar að kjarasamningi Samiðnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Bæjarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í sumarleyfi bæjarstjórnar sbr. bókun í 3. lið fundargerðar bæjarstjórnar 1. júlí 2014.

Bæjarráð frestar afgreiðslu.

11.Hverfisráð Hríseyjar - fundargerð

Málsnúmer 2010020035Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 81. fundar hverfisráðs Hríseyjar dags. 24. júní 2014.
Fundargerðina má finna á netslóðinni:
https://www.akureyri.is/is/stjornkerfi/stjornsysla/hverfisnefndir/hrisey/fundargerdir

Bæjarráð vísar 1. lið til forstöðumanns umhverfismála, 2. lið til forstöðumanns Sundlaugar Akureyrar, 4. lið til framkvæmdadeildar, 3., 5. og 6. liður eru lagðir fram til kynningar í bæjarráði. 

Varðandi 4. lið þá leggur bæjarráð áherslu á að farið verði strax í að koma gámasvæðinu í viðunandi horf og felur bæjarstjóra að fylgja málinu eftir.

12.Eyþing - fundargerðir

Málsnúmer 2010110064Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 255. fundar stjórnar Eyþings dags. 18. júní 2014.
Fundargerðina má finna á slóðinni: https://www.eything.is/is/fundargerdir-1

13.Fiskistofa - flutningur stofnunarinnar til Akureyrar

Málsnúmer 2014070017Vakta málsnúmer

Meirihluti bæjarráðs Akureyrar lýsir yfir fullum stuðningi við ákvörðun stjórnvalda um að fjölga opinberum störfum í bænum með því að staðsetja höfuðstöðvar Fiskistofu á Akureyri. Sú ákvörðun er í samræmi við ítrekaðar ályktanir bæjarráðs um mikilvægi þess að slík fjölgun eigi sér stað og í fullu samræmi við stefnu stjórnvalda. Akureyrarbær hefur þurft að horfa á eftir störfum af svæðinu og er því um ánægjulegan viðsnúning að ræða. Akureyri er kjörstaður fyrir starfsemi Fiskistofu vegna þeirrar sérfræðiþekkingar sem til staðar er í bænum á sjávarútvegi bæði hjá Háskólanum á Akureyri og hjá fyrirtækjum er starfa í greininni á Norðurlandi. Meirihluti bæjarráðs vill árétta að á Akureyri er fjölbreytt og sterkt samfélag sem er vel í stakk búið til þess að þar séu reknar stofnanir á vegum ríkisins á borð við Fiskistofu og munu bæjaryfirvöld standa vel að baki starfseminni.
Skiljanlegt er að flutningur stofnunarinnar valdi starfsmönnum hennar áhyggjum. Meirihluti bæjarráðs lýsir yfir vilja til að aðstoða þá starfsmenn sem vilja flytja með stofnuninni og hvetur þá til að útiloka ekki strax þann möguleika. Meirihluti bæjarráðs telur að með samstilltu átaki verði hægt að taka vel á móti því fólki og aðstoða eftir föngum til að verða hluti af nýju samfélagi.

Sóley Björk Stefánsdóttir V-lista sat hjá vegna ofangreinda bókunar og óskar bókað:
Ég lýsi yfir fullum stuðningi við stefnu stjórnvalda um að fjölga opinberum störfum á landsbyggðunum og flytja starfsemi opinberra stofnana en bendi á að mikilvægt er að útfæra stefnuna á faglegan hátt, meðal annars með aðferðum breytingastjórnunar. Mikilvægt er að íbúar á landsbyggðunum geti valið sér störf eftir áhugasviði og sérþekkingu og því skora ég á stjórnvöld að setja aukinn kraft í verkefnið Störf án staðsetningar og gera þar með öllum Íslendingum kleyft að sækja um opinber störf óháð búsetu. 

Fundi slitið - kl. 12:23.