Fiskistofa - flutningur stofnunarinnar til Akureyrar

Málsnúmer 2014070017

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3418. fundur - 03.07.2014

Meirihluti bæjarráðs Akureyrar lýsir yfir fullum stuðningi við ákvörðun stjórnvalda um að fjölga opinberum störfum í bænum með því að staðsetja höfuðstöðvar Fiskistofu á Akureyri. Sú ákvörðun er í samræmi við ítrekaðar ályktanir bæjarráðs um mikilvægi þess að slík fjölgun eigi sér stað og í fullu samræmi við stefnu stjórnvalda. Akureyrarbær hefur þurft að horfa á eftir störfum af svæðinu og er því um ánægjulegan viðsnúning að ræða. Akureyri er kjörstaður fyrir starfsemi Fiskistofu vegna þeirrar sérfræðiþekkingar sem til staðar er í bænum á sjávarútvegi bæði hjá Háskólanum á Akureyri og hjá fyrirtækjum er starfa í greininni á Norðurlandi. Meirihluti bæjarráðs vill árétta að á Akureyri er fjölbreytt og sterkt samfélag sem er vel í stakk búið til þess að þar séu reknar stofnanir á vegum ríkisins á borð við Fiskistofu og munu bæjaryfirvöld standa vel að baki starfseminni.
Skiljanlegt er að flutningur stofnunarinnar valdi starfsmönnum hennar áhyggjum. Meirihluti bæjarráðs lýsir yfir vilja til að aðstoða þá starfsmenn sem vilja flytja með stofnuninni og hvetur þá til að útiloka ekki strax þann möguleika. Meirihluti bæjarráðs telur að með samstilltu átaki verði hægt að taka vel á móti því fólki og aðstoða eftir föngum til að verða hluti af nýju samfélagi.

Sóley Björk Stefánsdóttir V-lista sat hjá vegna ofangreinda bókunar og óskar bókað:
Ég lýsi yfir fullum stuðningi við stefnu stjórnvalda um að fjölga opinberum störfum á landsbyggðunum og flytja starfsemi opinberra stofnana en bendi á að mikilvægt er að útfæra stefnuna á faglegan hátt, meðal annars með aðferðum breytingastjórnunar. Mikilvægt er að íbúar á landsbyggðunum geti valið sér störf eftir áhugasviði og sérþekkingu og því skora ég á stjórnvöld að setja aukinn kraft í verkefnið Störf án staðsetningar og gera þar með öllum Íslendingum kleyft að sækja um opinber störf óháð búsetu. 

Bæjarstjórn - 3360. fundur - 07.10.2014

Lögð fram tillaga að bókun svohljóðandi:
Bæjarstjórn Akureyrar lýsir furðu sinni á andstöðu formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga við uppbyggingu opinberra starfa á landsbyggðunum, sem birtist í tillöguflutningi hans í borgarráði Reykjavíkur. Orð hans um að gætt sé sérstaklega að "mikilvægi höfuðborgarinnar" þegar kemur að uppbyggingu opinberra stofnana eru í besta falli hjákátleg þegar horft er til þess að nær öll opinber störf á landinu verða til í Reykjavík. Tregða í kerfinu virðist hamla fjölgun opinberra starfa á landsbyggðunum hvort sem það er gert með flutningi stofnana eða staðsetningu nýrra stofnana. Eina leiðin til þess að breytingar verði og fleiri opinber störf byggist upp vítt og breitt um landið er með pólitískri ákvörðun.

Bæjarstjórn samþykkir framlagða bókun með 11 samhljóða atkvæðum.