Bæjarráð

3273. fundur 19. maí 2011 kl. 09:00 - 11:06 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Ólafur Jónsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Helgi Vilberg Hermannsson áheyrnarfulltrúi
  • Hermann Jón Tómasson áheyrnarfulltrúi
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss
Dagskrá

1.Rekstur - staða mála - embættismenn

Málsnúmer 2011050032Vakta málsnúmer

Kristín Sóley Sigursveinsdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar og Þórgnýr Dýrfjörð framkvæmdastjóri Akureyrarstofu mættu á fund bæjarráðs og fóru yfir rekstrarstöðu sinna deilda eftir fyrstu mánuði ársins.

Bæjarráð þakkar þeim Kristínu og Þórgný fyrir yfirferðina.

Þegar hér var komið vék Andrea Sigrún Hjálmsdóttir V-lista af fundi kl. 10:00.

2.Viðtalstímar bæjarfulltrúa - fundargerðir 2011

Málsnúmer 2011010122Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 12. maí 2011. Fundargerðin er í 4 liðum.

Bæjarráð vísar 1. lið til Akureyrarstofu, 2. liður er lagður fram til kynningar, en honum hefur verið svarað, 3. lið a), f) og h) er vísað til skipulagsdeildar og 3. lið b), c), d), e) og g) til framkvæmdadeildar. 4. liður er lagður fram til kynningar.

3.Landskerfi bókasafna hf - aðalfundur 2011

Málsnúmer 2011050061Vakta málsnúmer

Erindi dags. 10. maí 2011 frá Sveinbjörgu Sveinsdóttur framkvæmdastjóra f.h. stjórnar Landskerfis bókasafna hf, þar sem boðað er til aðalfundar félagsins 25. maí nk. að Höfðatúni 2 í Reykjavík kl. 15:00.

Bæjarráð felur Karli Guðmundssyni að fara með umboð Akureyrarbæjar á fundinum.

4.Málræktarsjóður - aðalfundur 2011

Málsnúmer 2011050066Vakta málsnúmer

Erindi dags. 6. maí 2011 frá framkvæmdastjóra Málræktarsjóðs. Aðalfundur Málræktarsjóðs verður haldinn föstudaginn 10. júní nk. og á Akureyrarbær rétt á að tilnefna mann í fulltrúaráð.

Bæjarráð tilnefnir Hólmkel Hreinsson sem aðalmann og Þórgný Dýrfjörð sem varamann í fulltrúaráðið og felur Hólmkeli að fara með umboð Akureyrarbæjar á aðalfundinum.

5.Samgönguþing 2011

Málsnúmer 2011050084Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dags. 10. maí 2011 þar sem innanríkisráðuneytið og samgönguráð hvetja landshlutasamtök sveitarfélaga til þátttöku á samgönguþingi 2011 og í framhaldinu til að vinna markvisst að sóknaráætlun næstu mánuði. Samgönguþingið verður haldið á Radisson Hótel Sögu í Reykjavík fimmtudaginn 19. maí 2011 og stendur frá kl. 13:00-17:00.

6.Almannavarnanefnd Eyjafjarðar - samstarfssamningur

Málsnúmer 2010010153Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að samstarfssamningi um rekstur Almannavarnanefndar Eyjafjarðar.

Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti.

7.Styrkir til breytinga á húsnæði vegna fötlunar

Málsnúmer 2011030148Vakta málsnúmer

4. liður í fundargerð félagsmálaráðs dags. 11. maí 2011:
Kristín Sóley Sigursveinsdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar, Guðrún Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjölskyldudeildar og Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri fjölskyldudeildar lögðu fram umsögn bæjarlögmanns um drög að reglum um styrki til að breyta húsnæði vegna fötlunar barna. Einnig voru lögð fram ný drög að reglum.
Félagsmálaráð samþykkir drögin með breytingum sem fram komu á fundinum og vísar málinu til bæjarráðs.

Bæjarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til staðfestingar í bæjarstjórn.

8.Heimasíða Akureyrarbæjar - rekstur

Málsnúmer 2011050081Vakta málsnúmer

Lagt fram svar bæjarstjóra við fyrirspurn Sigurðar Guðmundssonar A-lista sem fram kom undir liðnum Önnur mál á fundi bæjarráðs 20. janúar 2011 og varðar heildarkostnað við rekstur heimasíðu Akureyrarbæjar og samningstíma við núverandi rekstraraðila.

Heildarkostnaður við vefina: www.akureyri.is og www.visitakureyri.is var á árinu 2010 um 2,4 m.kr. en þá er talin aðkeypt þjónusta en ekki vinna starfsmanna Akureyrarbæjar.
Samningstími við núverandi þjónustuaðila síðunnar er ótímabundinn en með gagnkvæmum þriggja mánaða uppsagnarfresti.

9.Grenndargámar - hreinsun og eftirlit - fyrirspurn

Málsnúmer 2011050105Vakta málsnúmer

Lagt fram svar bæjarstjóra við fyrirspurn sem Sigurður Guðmundsson A-lista lagði fram í bæjarráði 24. mars sl. varðandi aðkomu starfsmanna Akureyrarbæjar að hreinsun og eftirliti við grenndargáma, þar sem það er ekki innan samnings Akureyrarbæjar og Gámaþjónustu Norðurlands ehf.

Samkvæmt samningi við Gámaþjónustuna ehf útvegar verktaki gáma/ílát á hverja grenndarstöð og rekur að öllu leyti.
Verktaki sér einnig samkvæmt samningi um að ílátin og umhverfi þeirra sé alltaf sérstaklega snyrtilegt.

Verktakinn er undanskilinn snjómokstri og hálkueyðingu.
Starfsmenn Framkvæmdamiðstöðvar sjá ásamt öðrum verkum um umhirðu í sveitarfélaginu jafnhliða því að sinna eftirliti með málaflokknum. Starfsmenn Framkvæmdamiðstöðvar sinna starfi sínu af samviskusemi og vandvirkni. Ábendingum um slælega umgegni í bænum er reglulega komið á framfæri við fyrirtæki og einstaklinga sé talin ástæða til.

Hermann Jón Tómasson S-lista vék af fundi kl. 10:55.

Fundi slitið - kl. 11:06.