Bæjarráð

3554. fundur 04. maí 2017 kl. 08:15 - 11:05 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Matthías Rögnvaldsson
  • Sigríður Huld Jónsdóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Preben Jón Pétursson
  • Sóley Björk Stefánsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Katrín Björg Ríkarðsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2018-2021 - fjárhagsrammi

Málsnúmer 2017040095Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að fjárhagsramma vegna vinnu við gerð fjárhagsáætlunar.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fjársýslusviðs að vinna áfram að málinu.

2.Menningarfélag Akureyrar - MAk

Málsnúmer 2016030110Vakta málsnúmer

Farið yfir rekstur Menningarfélags Akureyrar.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

3.Samkomulag fjármála- og efnahagsráðuneytis og Akureyrarbæjar um skiptingu lífeyrisskuldbindinga vegna öldrunarheimila

Málsnúmer 2017010009Vakta málsnúmer

Kynnt staða mála við uppgjör lífeyrisskuldbindinga vegna hjúkrunarheimila.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri vék af fundi kl. 9:30.

4.Fræðslusvið - stjórnsýslubreytingar

Málsnúmer 2017030171Vakta málsnúmer

1. liður í fundargerð kjarasamninganefndar dagsett 7. apríl 2017:

Umfjöllun um tillögu að breytingu á skipuriti fræðslusviðs sem samþykkt var á fundi fræðsluráðs 23. mars 2017.

Kjarasamninganefnd leggur til við bæjarráð að greitt verði stjórnendaálag fyrir starf forstöðumanns rekstrardeildar og starf forstöðumanns þjónustu á fræðslusviði.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir tillögu kjarasamninganefndar um að greitt verði stjórnendaálag fyrir starf forstöðumanns rekstrardeildar og starf forstöðumanns þjónustu á fræðslusviði.

Preben Jón Pétursson Æ-lista sat hjá við afgreiðslu.

5.Fjölskyldusvið - stjórnsýslubreytingar

Málsnúmer 2017030129Vakta málsnúmer

3. liður í fundargerð kjarasamninganefndar dagsett 7. apríl 2017:

Umfjöllun um tillögu að breytingu á skipuriti fjölskyldusviðs sem samþykkt var á fundi velferðarráðs 15. mars 2017.

Kjarasamninganefnd leggur til við bæjarráð að greitt verði stjórnendaálag fyrir starf forstöðumanns þjónustudeildar á fjölskyldusviði. Kjarasamninganefnd felur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að vinna að myndrænni framsetningu skipurita allra sviða.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir tillögu kjarasamninganefndar um að greitt verði stjórnendaálag fyrir starf forstöðumanns þjónustudeildar á fjölskyldusviði.

Preben Jón Pétursson Æ-lista sat hjá við afgreiðslu.

6.Búsetusvið - stjórnsýslubreytingar

Málsnúmer 2017030128Vakta málsnúmer

2. liður í fundargerð kjarasamninganefndar dagsett 7. apríl 2017:

Umfjöllun um tillögu að breytingu á skipuriti búsetusviðs sem samþykkt var á fundi velferðarráðs 15. mars 2017.

Kjarasamninganefnd leggur til við bæjarráð að greitt verði stjórnendaálag fyrir starf forstöðumanns stoðþjónustu á búsetusviði.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir tillögu kjarasamninganefndar um að greitt verði stjórnendaálag fyrir starf forstöðumanns stoðþjónustu á búsetusviði.

Preben Jón Pétursson Æ-lista sat hjá við afgreiðslu.

7.Gæðastefna Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2017030114Vakta málsnúmer

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs kynnti stöðu mála.
Bæjarráð heimilar sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að leggja viðauka og fylgigögn vegna málsins fyrir næsta fund bæjarráðs.

8.Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar - aðalfundur 2017

Málsnúmer 2017040153Vakta málsnúmer

Erindi frá Atvinnuþróunarfélagi Eyjarfjarðar þar sem tilkynnt er að aðalfundur félagsins verður haldinn fimmtudaginn 4. maí kl. 16:00 í Valsárskóla á Svalbarðseyri. Fyrir fundinn verða lagðar tillögur að breytingum á samþykktum.
Bæjarráð felur Guðmundi Baldvin Guðmundssyni formanni bæjarráðs að fara með umboð Akureyrarbæjar á fundinum. Bæjarráð samþykkir þær tillögur að breytingum á samþykktum sem munu verða lagðar fram á fundinum.

9.Viðtalstímar bæjarfulltrúa fundargerð

Málsnúmer 2016100117Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dagsett 27. apríl 2017.
Bæjarráð vísar 1. lið til forseta bæjarstjórnar og 2. lið til verkefnastjóra Brothættra byggða. Bæjarráð tekur jákvætt í erindið. Liður 3 er lagður fram til kynningar í bæjarráði. Lið 4 lið er vísað til skipulagssviðs, 5., 9. og 11. lið er vísað til umhverfis- og mannvirkjasviðs, liðum 6 og 8 er vísað til bæjarstjóra, 7. lið til fræðsluráðs og 10. lið til skipulagssviðs.

10.Tillaga til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2017-2021, 434. mál

Málsnúmer 2017040166Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 28. apríl 2017 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2017-2021, 434. mál 2017.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 12. maí nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/146/s/0567.html
Bæjarráð vísar tillögunni til umfjöllunar í velferðarráði.

11.Frumvarp til laga um jafna meðferð á vinnumarkaði, 435. mál

Málsnúmer 2017040168Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 28. apríl 2017 frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um jafna meðferð á vinnumarkaði, 435. mál 2017.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 10. maí nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/146/s/0568.html

12.Frumvarp til laga um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna, 436. mál

Málsnúmer 2017040170Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 26. apríl 2017 frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðernisuppruna, 436. mál 2017.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 10. maí nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/146/s/0569.html

13.Frumvarp til laga um sveitarstjórnarlög (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn), 375. mál

Málsnúmer 2017050002Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 28. apríl 2017 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um sveitarstjórnarlög (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn), 375. mál 2017.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 12. maí nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/146/s/0504.html

Fundi slitið - kl. 11:05.