Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar - aðalfundur 2017

Málsnúmer 2017040153

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3554. fundur - 04.05.2017

Erindi frá Atvinnuþróunarfélagi Eyjarfjarðar þar sem tilkynnt er að aðalfundur félagsins verður haldinn fimmtudaginn 4. maí kl. 16:00 í Valsárskóla á Svalbarðseyri. Fyrir fundinn verða lagðar tillögur að breytingum á samþykktum.
Bæjarráð felur Guðmundi Baldvin Guðmundssyni formanni bæjarráðs að fara með umboð Akureyrarbæjar á fundinum. Bæjarráð samþykkir þær tillögur að breytingum á samþykktum sem munu verða lagðar fram á fundinum.