Velferðarráð

1315. fundur 22. janúar 2020 kl. 14:00 - 15:25 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Heimir Haraldsson formaður
  • Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
  • Hermann Ingi Arason
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Sigrún Elva Briem áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Helga Guðrún Erlingsdóttir framkvæmdastjóri öa
  • Kristbjörg Björnsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristbjörg Björnsdóttir fundarritari
Dagskrá
Róbert Freyr Jónsson L-lista og varamaður hans boðuðu forföll.

1.Velferðarstefna 2018-2023

Málsnúmer 2018081103Vakta málsnúmer

Umræða um aðgerðaáætlun velferðarstefnu 2018-2023.

Guðrún Sigurðardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs og Karólína Gunnarsdóttir sviðsstjóri búsetusviðs sátu fundinn undir þessum lið.

2.Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA)

Málsnúmer 2012080060Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar drög að reglum um Notendastýrða persónulega aðstoð.

Guðrún Sigurðardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs, Karólína Gunnarsdóttir sviðsstjóri búsetusviðs og Halldóra Kristín Hauksdóttir lögfræðingur á skrifstofu fjölskyldusviðs sátu fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð vísar málinu til umsagnar samstarfshóps um málefni fatlaðs fólks.

3.Sjúkrahúsið á Akureyri - þjónusta öldrunarlækna

Málsnúmer 2013120021Vakta málsnúmer

Helga Guðrún Erlingsdóttir framkvæmdastjóri ÖA kynnti samning SAk og ÖA um læknaþjónustu.

4.ÖA - gæðamatskvarðar - RAI

Málsnúmer 2016020245Vakta málsnúmer

Helga Guðrún Erlingsdóttir framkvæmdastjóri ÖA kynnti RAI skýrslu 2019.

5.ÖA - aðstandendaskóli - styrkur frá heilbrigðisráðuneytinu

Málsnúmer 2020010262Vakta málsnúmer

Helga Guðrún Erlingsdóttir framkvæmdastjóri ÖA kynnti styrk frá heilbrigðisráðuneyti vegna verkefnisins: Aðstandendaskóli fyrir maka og fullorðin börn einstaklinga með heilabilunarsjúkdóm.

6.Stefna og áherslur í málefnum einstaklinga með heilabilun/Alzheimer

Málsnúmer 2017080028Vakta málsnúmer

Helga Guðrún Erlingsdóttir framkvæmdastjóri ÖA kynnti dagskrá fundar um styðjandi samfélag fyrir einstaklinga með heilabilun og aðstandendur þeirra, sem haldinn verður 7. febrúar nk. frá kl. 11:00 til 12:15 í Ketilhúsinu.

7.ÖA - stefna og starfsemi

Málsnúmer 2013010214Vakta málsnúmer

Ný verðskrá í mötuneyti ÖA lögð fram til samþykktar.
Velferðarráð samþykkir nýja verðskrá mötuneytis ÖA.

Fundi slitið - kl. 15:25.