Umhverfis- og mannvirkjaráð

109. fundur 19. nóvember 2021 kl. 08:15 - 11:24 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Andri Teitsson formaður
  • Unnar Jónsson
  • Sunna Hlín Jóhannesdóttir
  • Sigurjón Jóhannesson
  • Berglind Bergvinsdóttir
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri
Dagskrá

1.Beitarhólf í eigu Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2021110971Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 19 nóvember 2021 varðandi útleigu beitarhólfa í eigu Akureyrarbæjar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga til samninga við Hestamannafélagið Létti um útleigu á beitarhólfum í eigu Akureyrarbæjar.

2.Sorphirða í Akureyrarbæ - útboð 2022

Málsnúmer 2021101499Vakta málsnúmer

Rætt um aðgerðaáætlun í aðdraganda útboðs á sorpsamningi Akureyrarbæjar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð stefnir að því að bjóða út söfnun og flutning á sorpi eftir áramót.

3.Búnaðarkaup UMSA 2021

Málsnúmer 2021010381Vakta málsnúmer

Teknar fyrir beiðnir til búnaðarkaupa frá frístundaráði.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að leggja 5,5 milljónir króna í kaup á stólum og borðum í Víðilund og 6 milljónir í skorklukku við Þórsvöll og verði féð tekið af búnaðarkaupasjóði umhverfis- og mannvirkjasviðs 2021.

Öðrum beiðnum er frestað og vísað til umræðu á árinu 2022.

4.Sala tækja á umhverfismiðstöð

Málsnúmer 2021040823Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað vegna sölu eldri tækja á umhverfismiðstöð.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir eftirfarandi tilboð og felur sviðsstjóra að fara betur yfir tilboð í valtara og götusóp:


YA-962 - Mercedes Benz 312D - 213.000 kr.

Bjóðandi er Sigurður Ingvar Ólafsson.


NZ-180 - Mercedes Benz 312D - 133.000 kr.

Bjóðandi er Sigurður Ingvar Ólafsson.


DY-673 - Renault Trafic - 53.000 kr.

Bjóðandi er Andri Freyr Jónsson.


LL-801 - Renault Kangoo - 131.112 kr.

Bjóðandi er Hrafn Svavarsson.


ME-868 - Mitsubishi L200 - 45.000 kr.

Bjóðandi er Andri Freyr Jónsson.


MF-023 - Subaru Impreza - 45.000 kr.

Bjóðandi er Jón V Finnsson.


IB-0972 - Kubota - 380.000 kr.

Bjóðandi er Rúnar Gústafsson.


IB-1195 - Kubota - 840.000 kr.

Bjóðandi er Svavar Jónsson.


VI-060 - Marshall sturtuvagn - 555.000 kr.

Bjóðandi er Arnar Gústafsson.


Fjárkerra - 107.563 kr.

Bjóðandi er Svavar Jónsson.


Hjólastólalyfta - 33.000 kr.

Bjóðandi er Sigurður Ingvar Ólafsson.


Bílalyfta - 353.000 kr.

Bjóðandi er Sigurður Ingvar Ólafsson.

5.Kaffihús í Lystigarðinum á Akureyri - rekstur

Málsnúmer 2021110967Vakta málsnúmer

Lögð fram greinargerð dómnefndar vegna opnunar tilboðs í rekstur á kaffihúsinu í Lystigarðinum á Akureyri. Eitt tilboð barst.
Það er mat dómnefndar að hugmyndafræði bjóðanda passi vel inn í Lystigarðinn ásamt því að gert er ráð fyrir heilsársopnun á kaffihúsinu. Markhópagreining bjóðanda er vel upp sett þar sem hugsað er um alla aldurshópa. Einnig er talsvert lagt upp úr viðburðahaldi sem yrði gott aðdráttarafl fyrir kaffihúsið og Lystigarðinn.


Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka tilboði Kaffi Lystar í leigu á húsinu.

6.Viðaukar og tilfærslur 2021

Málsnúmer 2021061742Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað varðandi tilfærslu innan viðhaldsáætlunar fasteigna og leiguíbúða, færslu innan Klappa milli ára og hækkun og færslu milli ára í Lundarskóla.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir eftirfarandi viðauka og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarráði:


Leikskólinn Klappir

43 milljónir kr. - Tilfærsla á fjármagni frá fjárfestingaráætlun 2020 til 2021.

50 milljónir kr. - Viðauki vegna verðbóta við verksamning og hærri fjármagnskostnaðar á byggingartíma.

17 milljónir kr. - Viðauki vegna aukins framkvæmdakostnaðar við verkið.

Samtals viðauki á árinu kr. 110 milljónir.


Lundarskóli

107 milljónir kr. - Tilfærsla á fjármagni frá fjárfestingaráætlun 2022 til 2021.


Viðhald fasteigna

25 milljónir kr. - Tilfærsla á fjármagni frá viðhaldsáætlun fasteigna Akureyrarbæjar yfir í viðhaldsáætlun leiguíbúða Akureyrarbæjar.

7.Fjárhagsáætlun UMSA 2022

Málsnúmer 2021081199Vakta málsnúmer

Eignfærsluáætlun 2022-2025 lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 11:24.