Umhverfis- og mannvirkjaráð

23. fundur 01. desember 2017 kl. 08:15 - 11:00 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Eiríkur Jónsson
  • Sæbjörg Sylvía Kristinsdóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Jón Þorvaldur Heiðarsson
  • Hermann Ingi Arason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhaldsdeildar
  • Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar
Dagskrá
Jón Þorvaldur Heiðarsson Æ-lista mætti í forföllum Þorsteins Hlyns Jónssonar.

1.Óshólmasvæði - beiðni um að flýta fuglatalningu vegna fyrirhugaðrar landfyllingar í Hvammslandi

Málsnúmer 2017110171Vakta málsnúmer

Tekinn fyrir 3. liður í fundargerð Óshólmanefndar þar sem óskað er eftir að fuglatalningu verði flýtt á svæðinu vegna beiðnar um hækkun lands á Hvammsflæðum.
Þar sem ný gögn í málinu er varða frekari landfyllingar í landi Hvamms og áhrif á vatnsbúskap frestar umhverfis- og mannvirkjaráð ákvörðun um hvort farið verði í fuglatalningar á óshólmasvæðinu um ótiltekin tíma.

2.Frístundaráð - stefnumótun - íþróttastefna 2017

Málsnúmer 2017020033Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni um umsögn umhverfis- og mannvirkjaráðs á drögum að nýrri stefnu Akureyrarbæjar og ÍBA í íþróttamálum til ársins 2022 dagsett í október 2017.
Umhverfis- og mannvirkjaráð fagnar því að verið sé að móta skýra stefnu í íþróttamálum hjá Akureyrarbæ. Ráðið leggur áherslu á að gott samráð verði haft við ráðið og sviðið þegar kemur að málefnum íþróttamannvirkja.

3.Hljóðvistarstyrkir - reglur Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2017110268Vakta málsnúmer

Teknar fyrir að nýju reglur vegna styrkveitinga í glerskipti vegna hljóðvistar við götur.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir endurskoðaðar reglur með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarráði. Ráðið óskar jafnframt eftir því að fjármagn verði sett í verkefnið á árinu 2018.

4.Nökkvi siglingaklúbbur - framkvæmdir vegna uppbyggingarsamnings

Málsnúmer 2015030205Vakta málsnúmer

Lögð fram stöðuskýrsla 2 um framkvæmdina dagsett 24. nóvember 2017.

5.Listasafn - endurbætur

Málsnúmer 2014010168Vakta málsnúmer

Lögð fram stöðuskýrsla 1 vegna framkvæmdanna dagsett 30. nóvember 2017.

6.Sundlaug Akureyrar - endurnýjun rennibrauta og sundlaugarsvæðis

Málsnúmer 2014020207Vakta málsnúmer

Lögð fram stöðuskýrsla 3 vegna framkvæmdanna dagsett 30. nóvember 2017.

Kristján Snorrason byggingastjóri á umhverfis- og mannvirkjasviði sat fundinn undir þessum lið.

7.Leiguíbúðir - bygging lítilla íbúða

Málsnúmer 2017010357Vakta málsnúmer

Lögð fram greinargerð 2 dagsett 30. nóvember 2017 vegna málsins.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagða tillögu.

8.Fjárhagsáætlun 2018 - umhverfis- og mannvirkjasvið

Málsnúmer 2017050203Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar frumvarp að fjárfestingaráætlun fyrir árið 2018 fyrir seinni umræðu í bæjarráði.

9.Fjárhagsáætlun 2018 - umhverfis- og mannvirkjasvið

Málsnúmer 2017050203Vakta málsnúmer

Lagðar fram starfsáætlanir fyrir árið 2018.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir starfsáætlanir umhverfis- og mannvirkjasviðs fyrir árið 2018 með þeim breytingum sem fram komu á fundinum.

10.Naustahverfi 7. áfangi - Hagar

Málsnúmer 2017080054Vakta málsnúmer

Lögð fram stöðuskýrsla 2 vegna framkvæmdanna dagsett 1. desember 2017.

11.Verkfundargerðir 2017

Málsnúmer 2017010343Vakta málsnúmer

Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram á fundinum:

Drottningarbrautarstígur 5. áfangi: 5. verkfundur dagsettur 8. nóvember 2017.

Listasafn: 11. verkfundur dagsettur 16. nóvember 2017.

Nökkvi: 19. fundur verkefnisliðs dagsettur 16. nóvember 2017.

Sundlaug Akureyrar rennibrautir og pottar: 18. verkfundur dagsettur 29. nóvember 2017.

Sundlaug Akureyrar: 21.- 24. fundur verkefnisliðs dagsettir 21. og 23. ágúst, 25. september og 13. nóvember 2017.

Fundi slitið - kl. 11:00.