Stjórn Akureyrarstofu

86. fundur 15. desember 2010 kl. 16:00 - 18:02 Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Sigmundur Einar Ófeigsson
  • Jón Hjaltason
  • Sigrún Stefánsdóttir
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
Starfsmenn
  • Þórgnýr Dýrfjörð fundarritari
Dagskrá

1.Starfshópur Akureyrarstofu um atvinnumál

Málsnúmer 2010060120Vakta málsnúmer

Sigmundur Ófeigsson fulltrúi stjórnar Akureyrarstofu í starfshópnum fór yfir stöðuna í vinnu starfshópsins og næstu skref.

2.Skíðarúta á Akureyri - styrkumsókn 2010

Málsnúmer 2010120011Vakta málsnúmer

Erindi dags. 30. nóvember 2010 frá Jóni Þóri Benediktssyni þar sem hann kynnir hugmyndir sínar um skíðarútu á Akureyri og vill athuga hvort Akureyrarstofa vilji styrkja verkefnið og með því móti hjálpa til við að halda miðaverðinu lágu.

Stjórnin felur framkvæmdastjóra að ræða við bréfritara.

Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

3.Efling tónlistarlífs á Akureyri - ósk um áframhaldandi samstarf

Málsnúmer 2010120075Vakta málsnúmer

Erindi dags 6. desember 2010 frá Jóni Hlöðveri Áskelssyni þar sem hann óskar eftir endurskoðun á samstarfi við Akureyrarbæ v/verkefnisins Efling tónlistar á Akureyri.

Stjórnin felur formanni og framkvæmdastjóra að ræða við bréfritara.

4.Ein með öllu - fjárframlög fyrri ára - ósk um áframhaldandi samstarf

Málsnúmer 2010100169Vakta málsnúmer

Erindi dags. 14. október 2010 þar sem félagið Vinir Akureyrar f.h. hátíðarinnar Ein með öllu óska eftir stuðningi við hátíðina 2010 umfram það sem þegar hafði verið ákveðið og að gerður verði samningur um áframhaldandi stuðning og samstarf um hátíðina í framtíðinni.

Stjórnin samþykkir að koma til móts við félagið í rekstri hátíðarinnar 2010 en að tekið verði tillit til þess við fjárveitingar til hátíðarinnar á næsta ári. Framkvæmdastjóra falið að ræða við fulltrúa félagsins um gerð samstarfsamnings til framtíðar.

5.Styrkbeiðni vegna Þrettándagleði Þórs árið 2011

Málsnúmer 2010120029Vakta málsnúmer

Erindi dags. 3. desember 2010 frá Íþróttafélaginu Þór þar sem óskað er eftir fjárhagslegum stuðningi við Þrettándagleði félagsins 2011.

Stjórnin samþykkir að styrkja hátíðina um kr. 150.000.

6.Atvinnuátaksverkefni Akureyrarbæjar og Vinnumálastofnunar 2010

Málsnúmer 2009020174Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit um átaksverkefni Akureyrarbæjar fyrstu 9 mánuði ársins 2010.

7.Siðareglur fyrir kjörna fulltrúa

Málsnúmer 2009090017Vakta málsnúmer

Drög að siðareglum fyrir kjörna fulltrúa teknar fyrir að nýju.

Stjórnin gerir ekki athugasemdir við drögin.

Fundi slitið - kl. 18:02.