Skólanefnd

12. fundur 25. júní 2012 kl. 14:00 - 16:40 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Preben Jón Pétursson formaður
  • Sigríður María Hammer
  • Anna Sjöfn Jónasdóttir
  • Helgi Vilberg Hermannsson
  • Logi Már Einarsson
  • Ingibjörg Salóme Egilsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Gunnar Gíslason fræðslustjóri
  • Hrafnhildur G Sigurðardóttir leikskólafulltrúi
Dagskrá
Gerður Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi B-lista boðaði forföll.

1.Íþrótta- og tómstundaskóli

Málsnúmer 2012020136Vakta málsnúmer

Sólveig Jónasdóttir verkefnisstjóri á skóladeild kom á fundinn og kynnti stöðu verkefnisins Frístundaskóli á Akureyri.

Skólanefnd þakkar Sólveigu fyrir góða kynningu og starfshópnum fyrir sín störf.

2.Innritun í leikskóla 2012

Málsnúmer 2012010078Vakta málsnúmer

Sesselja Sigurðardóttir leikskólaráðgjafi kom á fundinn og gerði grein fyrir stöðu innritunar í leikaskóla 2012 eins og hún liggur fyrir nú í lok júní.
Búið er að innrita 292 börn af árgangi 2010 í leikskólana. Í dag eru skráð 328 börn með lögheimili á Akureyri, voru 316 í janúar 2012. Skráðum börnum á leikskólaaldri hefur fjölgað úr 1132 í janúar 2012 í 1141 nú í júní.
Alls eru 14 börn nú á biðlista, tveggja ára og eldri, sem bíða eftir svari um leikskólapláss. Gera má ráð fyrir að bæta þurfi við 1,0 stöðugildi til að hægt verði að anna þeirri eftirspurn. Kostnaðurinn nemur um 1.5 millj. frá 1. sept. til loka ársins eða um 4,5 millj. á ársgrundvelli. Ennþá eru að berast umsóknir um leikskólapláss svo hugsanlega má búast við að fleiri börn bætist í hópinn þegar fram líða stundir.
Óskað er eftir heimild til að ráða í 1,0 stöðugildi til að anna eftirspurn eftir leikskólaplássum fyrir tveggja ára og eldri.

Skólanefnd samþykkir að óska eftir því við bæjarráð að fá aukafjárveitingu að upphæð 1,5 millj. til að ráða í viðbótastöðu starfsmanns í leikskóla.

3.Sérkennsla í leikskólum 2012

Málsnúmer 2012060176Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað ódagsett frá Hrafnhildi G. Sigurðardóttur þar sem óskað er eftir aukningu um 1,5 stöðugildi vegna sérkennslu leikskólabarna á árinu 2012. Áætlaður kostnaður er 7,2 millj.
Meginástæða þess að fjölga þarf stöðugildum á yfirstandandi ári er að tvö börn hafa flutt í bæinn nú í vor sem þurfa mikla sérkennslu og tvö börn til viðbótar hafa þurft sérkennslu vegna alvarlegra veikinda. Að auki eru tvö ung börn að byrja í leikskóla með greiningu sem kallar á mikla sérkennslu. Einnig hefur verið óskað eftir þjónustu fyrir eitt fjölfatlað barn.

Skólanefnd samþykkir að óska eftir því við bæjarráð að fá aukafjárveitingu að upphæð 7,2 millj. til að ráða í viðbótastöðu vegna fjölgunar barna með fötlunargreiningu í leikskólum.

4.Fagmenntun starfsmanna í leikskólum

Málsnúmer 2012060179Vakta málsnúmer

Erindi dags. 30. maí 2012 frá 11 leikskólastjórum á Akureyri þar sem farið er fram á að skólayfirvöld og rekstraryfirvöld leikskóla Akureyrarbæjar endurskoði ákvörðun sína um að fagmenntað starfsfólk í leikskólum Akureyrar sé að hámarki 90% af heildarfjölda starfsmanna á deild.

Skólanefnd þakkar skólastjórnendum leikskólanna fyrir erindið og minnir á að ákvörðunin um 90% regluna er eingöngu byggð á fjárhagslegum forsendum til eins árs í senn. Erindinu er vísað til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2013.

5.Fjárhagsáætlun 2013 - Fræðslu- og uppeldismál

Málsnúmer 2012060177Vakta málsnúmer

Bæjarráð vísaði á fundi sínum 14. júní 2012 fjárhagsrömmum fyrir árið 2013 til umfjöllunar í nefndum bæjarins og óskaði eftir athugasemdum fyrir 18. ágúst nk.

Skólanefnd felur rekstrarstjóra og fræðslustjóra skóladeildar að leggja mat á forsendur fjárhagsramma ársins 2013 og kynna fyrir skólanefndarfulltrúum.

6.Ytra mat á skólastarfi - viðmið um gæði

Málsnúmer 2011090084Vakta málsnúmer

Erindi dags. 7. júní 2012 frá Björk Ólafsdóttur þar sem Akureyrarbæ og Lundarskóla er þakkað fyrir þátttöku í tilraunaverkefni um ytra mat.
Þar kemur fram að nú þegar matsteymið hefur skilað af sér niðurstöðum með skilafundi og skýrslu þá kemur til kasta sveitarfélagsins, eða skólanefndar/skóladeildar í umboði þess, að fylgja niðurstöðunum eftir og sjá til þess að skólinn vinni með þær tillögur sem settar voru fram af matsaðilum.
Meðfylgjandi er skýrsla matsaðila um starfsemi Lundarskóla en þar fær skólinn almennt jákvætt mat.

Skólanefnd fagnar niðurstöðum matsins og óskar skólasamfélagi Lundarskóla til hamingju með þennan góða árangur.

Jóhannes Gunnar Bjarnason vék af fundi kl. 15.55.

7.Íþróttakennsla í grunnskólum - rannsókn á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins feb-mar 2012

Málsnúmer 2012050063Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrsla sem unnin var fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið um íþróttakennslu í grunnskólum landsins. Byggir skýrslan á niðurstöðum könnunar sem gerð var á tímabilinu febrúar-mars 2012.

Fundi slitið - kl. 16:40.