Skipulagsnefnd

183. fundur 09. júlí 2014 kl. 08:00 - 11:00 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Tryggvi Már Ingvarsson formaður
  • Eva Reykjalín Elvarsdóttir varaformaður
  • Ólína Freysteinsdóttir
  • Sigurjón Jóhannesson
  • Edward Hákon Huijbens
  • Jón Þorvaldur Heiðarsson áheyrnarfulltrúi
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
Dagskrá

1.Eyjafjarðarbraut, flugskýli 10 - deiliskipulagsbreyting

Málsnúmer 2014060152Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 6. júní 2014 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson f.h. Flugfélags Íslands, óskar eftir stækkun á byggingarreit fyrir flugskýli 10 á lóð 3a við Eyjafjarðarbraut. Skipulagsnefnd heimilaði umsækjanda þann 25. júní 2014 að leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi.
Tillagan er dagsett 1. júlí 2014 og unnin af Steinmari H. Rögnvaldssyni hjá H.S.Á. Teiknistofu.

Einungis er um að ræða minniháttar stækkun á byggingarreit vegna stækkunar flugskýlis og er breyting sem varðar Akureyrarkaupstað og lóðarhafa. Þess vegna leggur skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt í samræmi við 2. málslið, 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

2.Krókeyrarnöf 11 - deiliskipulagsbreyting

Málsnúmer 2014020167Vakta málsnúmer

Erindið var grenndarkynnt 24. júní 2014 og lauk 1. júlí 2014 þar sem allir þeir sem grenndarkynninguna fengu skiluðu samþykki sínu fyrir breytingunni.

Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna á grundvelli 4. gr.-e "Samþykktar um skipulagsnefnd" og felur skipulagsstjóra að annast gildistöku hennar.

3.Norðurtangi 5 - tillaga að deiliskipulagsbreytingu

Málsnúmer 2014050162Vakta málsnúmer

Skipulagsstjóri lagði fram tvær tillögur að breytingu á deiliskipulagi hafnarsvæða sunnan Glerár, dagsettar 30. júní 2014. Tillögurnar eru unnar af Árna Ólafssyni hjá Teiknistofu Arkitekta, Gylfa Guðjónssyni og félögum ehf.

Skipulagsnefnd felur skipulagsstjóra að vinna áfram tillögu B á grundvelli umræðna á fundinum og leggja fyrir skipulagsnefnd að nýju.

Frestað.

 

Ólína Freysteinsdóttir mætti á fundinn kl. 8:30.
Inga Þöll mætti á fundinn kl. 8:25.

4.Kynning á ábyrgðarmörkum og siðareglum kjörinna fulltrúa og nefndarmanna

Málsnúmer 2014070048Vakta málsnúmer

Bæjarlögmaður Inga Þöll Þórgnýsdóttir kynnti reglur um ábyrgðarmörk og siðareglur kjörinna fulltrúa og nefndarmanna.

Skipulagsnefnd þakkar bæjarlögmanni fyrir kynninguna.

Inga Þöll fór af fundinum kl. 9:10.

5.Lækjargata 9a - fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi

Málsnúmer 2014060004Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. júní 2014 þar sem Halldór Arnarsson f.h. Trémáls ehf., kt. 580587-1199, sækir um breytingar á deiliskipulagi vegna fyrirhugaðra breytinga á húsi nr. 9a við Lækjargötu. Meðfylgjandi eru uppdrættir og myndir af breytingum.
Skipulagsnefnd óskaði eftir áliti Minjastofnunar Íslands vegna breytinganna á húsinu sem barst 24. júní 2014 en þar kemur fram að ekki eru gerðar athugasemdir við fyrirhugaða viðbyggingu við húsið líkt og framlagðar teikningar sýna. Þó er mælt gegn því að gluggum gamla hússins verði breytt á þann hátt sem uppdrættir sýna.

Skipulagsnefnd heimilar umsækjanda að leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi. Breytingin verði unnin í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

6.Stekkjargerði 5 - grenndarkynning

Málsnúmer 2014050097Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. maí 2014 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Sigursteins Ingvarssonar og Ingu Völu Magnúsdóttur sækir um leyfi til þess að byggja þakrými ofan á bílageymslu.
Tillagan var grenndarkynnt frá 5. júní til 3. júlí 2014. Engar athugasemdir bárust.

Skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið og felur skipulagsstjóra að afgreiða umsókn um byggingarleyfi þegar hún berst.

7.Oddeyrartangi landnr. 149144 (Laufásgata 8) - umsókn um lóðarstækkun

Málsnúmer 2014070031Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 11. júní 2014 þar sem Anton Örn Brynjarsson f.h. Polaris Seafood ehf., kt. 551007-1030, sækir um lóðarstækkun við Oddeyrartanga, landnúmer 149144 (Laufásgata 8). Meðfylgjandi er afstöðumynd.

Skipulagsnefnd felur skipulagsstjóra að vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samráði við umsækjanda. Breytingin verði unnin í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. 

8.Grímseyjargata 2 og 2a - umsókn um deiliskipulagsbreytingu

Málsnúmer 2014070035Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 25. júní 2014 þar sem Hjalti H. Hjaltason f.h. Sláturfélags Suðurlands svf., kt. 600269-2089, óskar eftir því að lóðirnar við Grímseyjargötu 2 og 2a verði sameinaðar í eina lóð. Meðfylgjandi er jákvæð umsögn frá Hafnasamlagi Norðurlands.

Erindinu er frestað.

9.Daggarlundur 9, 11 og 13 - fyrirspurn

Málsnúmer 2014070043Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 4. júlí 2014 þar sem Þórir Guðmundsson f.h. ÁK Smíði ehf., kt. 450404-2840, leggur inn fyrirspurn um að breyta gildandi skipulagi fyrir lóðirnar við Daggarlund 9, 11 og 13 í lóð fyrir fimm íbúða raðhús.

Við vinnslu deilskipulags svæðisins var tekið mið af nærliggjandi byggð s.s. við Eikarlund en þar er einungis gert ráð fyrir einbýlishúsum á einni hæð en við það skapaðist samræmi í byggðamynstri. Skipulagsnefnd telur því að umbeðin breyting falli ekki inn í þá hugmyndafræði sem lagt var af stað með og hafnar því erindinu. Bent er á að hægt er að sækja um lausar raðhúsalóðir við Heiðartún, Jaðarsíðu og Höfðahlíð.

10.Sjafnargata 1 - umsókn um lóð

Málsnúmer 2014070036Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 3. júlí 2014 þar sem Guðmundur Gunnarsson f.h. GV Gröfur ehf., kt. 500795-2479, sækir um lóðina nr. 1 við Sjafnargötu.

Erindinu er frestað.

11.Sjafnargata 2 - umsókn um lóð

Málsnúmer 2014070041Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 4. júlí 2014 þar sem Arnar Þór Ólafsson f.h. Nesfraktar ehf., kt. 490500-2780, sækir um lóðina nr. 2 við Sjafnargötu og hyggst byggja á lóðinni hús fyrir vörudreifingu. Óskað er eftir að skilmálum fyrir lóðina verði breytt þar sem lóðin er skilgreind fyrir bílaþjónustu.

Lóðin er skilgreind í gildandi deiliskipulagi undir verslun og þjónustu s.s. bílaþjónustu eða bensínstöð. Aðrar lausar lóðir á svæðinu eru athafnasvæðislóðir sem henta betur undir þá þjónustu eins og fyrirtækið starfrækir. Erindinu er því hafnað.

12.Gatnagerðargjöld - endurskoðun 2014

Málsnúmer 2011020017Vakta málsnúmer

Skipulagsstjóri lagði fram tillögu að endurskoðaðri gjaldskrá gatnagerðargjalda á Akureyri. Tillagan er unnin í samráði við fjármálastjóra en lagt er til að framlengdur verði tímabundinn 20% afsláttur af gatnagerðargjaldi frá 1. júlí 2014 til 31. desember 2014 en lækki síðan árlega um 5%.

Skipulagsnefnd leggur til að veittur verði 15% afsláttur til 31. desember 2014 og 7,5% til 30. júní 2015 en að afsláttur falli síðan niður og vísar tillögunni að öðru leyti til afgreiðslu bæjarráðs.

13.Afgreiðslur skipulagsstjóra 2014

Málsnúmer 2014010005Vakta málsnúmer

Fundargerð dagsett 25. júní 2014. Lögð var fram fundargerð 498. fundar með fullnaðarafgreiðslum erinda. Fundargerðin er í 6 liðum.
Lagt fram til kynningar.

14.Afgreiðslur skipulagsstjóra 2014

Málsnúmer 2014010005Vakta málsnúmer

Fundargerð dagsett 2. júlí 2014. Lögð var fram fundargerð 499. fundar með fullnaðarafgreiðslum erinda. Fundargerðin er í 7 liðum.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 11:00.