Íþróttaráð

191. fundur 19. maí 2016 kl. 14:00 - 14:00 Golfskálinn að Jaðri
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Árni Óðinsson
  • Birna Baldursdóttir
  • Þórunn Sif Harðardóttir
  • Jónas Björgvin Sigurbergsson
  • Alfa Dröfn Jóhannsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála ritaði fundargerð
Dagskrá
Alfa Dröfn Jóhannsdóttir V-lista mætti í forföllum Guðrúnar Þórsdóttur.

1.Fjárhagsáætlun 2016 - íþróttaráð

Málsnúmer 2015080072Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar rekstrarstaða fjárhagsáætlunar íþróttaráðs fyrir janúar til og með apríl 2016.

2.Fjárhagsáætlun 2016 - íþróttaráð

Málsnúmer 2015080072Vakta málsnúmer

Guðmundur Karl Jónsson forstöðumaður Hlíðarfjalls kom á fund ráðsins og fór yfir rekstur skíðasvæðisins á líðandi vetri.

Íþróttaráð fagnar góðri aðsókn í Hlíðarfjall í vetur.

3.Akureyri á iði

Málsnúmer 2015040025Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu verkefnisins Akureyri á iði og Hreyfivika UMFÍ kynnt.
Íþróttaráð hefur ákveðið að bjóða frían aðgang að sundlaugum Akureyrarbæjar einn dag í "Hreyfiviku UMFÍ" og af tilefni "Akureyri á iði". Forstöðumanni íþróttamála falið að vinna málið áfram með forstöðumönnum sundlauganna.

Íþróttaráð hvetur bæjarbúa til þátttöku í "Akureyri á iði" og "Hreyfiviku UMFÍ"

4.Sundlaug Akureyrar - kvörtun vegna tvöfaldrar gjaldtöku

Málsnúmer 2016050017Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 16. mars 2016 frá Huldu M. Jónsdóttur fyrir hönd vatnsleikfimihópsins Svanavatnsins vegna tvöfaldrar gjaldtöku í Sundlaug Akureyrar.
Íþróttaráð mun hafa málið til hliðsjónar við gerð gjaldskrár fyrir árið 2017 í haust.

5.Akureyri handboltafélag - endurbætur á félagsaðstöðu AHF í Íþróttahöllinni

Málsnúmer 2016040051Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 30. mars 2016 frá stjórn Akureyri handboltafélags þar sem félagið óskar eftir því við íþróttaráð Akureyrar að félagsaðstaða félagsins verði bætt í núverandi húsnæði í

samstarfi við AHF.
Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu um endurbætur á aðstöðunni.

Íþróttaráð bendir Akureyri handboltafélagi á að hafa samráð við forstöðumann Íþróttahallarinnar varðandi aðrar óskir í erindinu.

Íþróttaráð felur forstöðumanni íþróttamála og forstöðumanni Íþróttahallarinnar að vinna að tillögum um nýtingu rýma í Íþróttahöllinni fyrir aðildarfélög ÍBA og sérsambönd.

6.Nökkvi félag siglingamanna á Akureyri - uppbyggingarsamningur 2014-2018

Málsnúmer 2014010269Vakta málsnúmer

Umræður um samninginn og nýlegur viðauki kynntur.
Íþróttaráð óskar eftir áliti frá skipulagsdeild Akureyrarbæjar á því hvernig húsnæði skuli rísa á félagssvæði Nökkva.

7.Mannauðsstefna Akureyrarbæjar - umsagnir nefnda

Málsnúmer 2016050019Vakta málsnúmer

Drög að Mannauðsstefnu Akureyrarbæjar tekin til umsagnar.
Íþróttaráð gerir ekki athugasemdir við drög að mannauðsstefnu og samþykkir hana fyrir sitt leyti.
Alfa Dröfn Jóhannsdóttir V-lista vék af fundi kl. 15:45.

Íþróttaráð þakkar Golfkúbbi Akureyrar fyrir fundaraðstöðuna.

Fundi slitið - kl. 14:00.