Fræðsluráð

18. fundur 28. október 2019 kl. 14:00 - 16:00 Fundarsalur 1. hæð Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Þorlákur Axel Jónsson
  • Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir
  • Rósa Njálsdóttir
  • Þórhallur Harðarson
  • Þuríður Sólveig Árnadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
  • Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar
  • Anna Lilja Sævarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra
  • María Aðalsteinsdóttir fulltrúi grunnskólakennara
  • Ellý Dröfn Kristjánsdóttir fulltrúi leikskólakennara
  • Jóhann Gunnarsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna
  • Helen Birta Kristjánsdóttir varamaður foreldra leikskólabarna
  • Hildur Lilja Jónsdóttir fulltrúi ungmennaráðs
Fundargerð ritaði: Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
Dagskrá
Eyrún Skúladóttir fulltrúi skólastjóra grunnskóla boðaði forföll.

1.Samfelldur vinnudagur barna

Málsnúmer 2019090401Vakta málsnúmer

Hrafnhildur Guðjónsdóttir verkefnisstjóri um samfelldan vinnudag barna kom á fundinn og kynnti stöðu verkefnisins.

2.Jafnréttisstefna - skipan þróunarleiðtoga

Málsnúmer 2018110171Vakta málsnúmer

Fræðsluráð samþykkir að skipa Ragnheiði Lilju Bjarnadóttur L-lista þróunarleiðtoga fræðsluráðs vegna jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar í stað Heimis Haraldssonar.

3.Staðfesting á skólasókn

Málsnúmer 2018100121Vakta málsnúmer

Eitt af lögbundnum verkefnum fræðsluráðs sbr. 6. grein laga nr. 91/2008 um grunnskóla er ,,að sjá til þess að öll skólaskyld börn sem rétt eiga á skólavist í sveitarfélaginu njóti lögboðinnar fræðslu."

Árni K. Bjarnason forstöðumaður rekstrar og Karl Frímannsson sviðsstjóri lögðu fram greinargerð um málið.
Fræðsluráð staðfestir að öll skólaskyld börn með lögheimili í Akureyrarbæ njóta lögboðinnar fræðslu skv. lögum.

4.Ytra mat á grunnskólum 2015-2020

Málsnúmer 2015050045Vakta málsnúmer

Lokaskýrsla ytra mats á Hríseyjarskóla lögð fram til kynningar.

5.Tvöföld skólavist barna

Málsnúmer 2019100028Vakta málsnúmer

Tillaga um reglur vegna óska um tvöfalda námsvist í leik- og grunnskólum lögð fram til staðfestingar en hún byggir á leiðbeinandi áliti Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 1.10.2019.
Fræðsluráð samþykkir framlagða tillögu um að farið verði að áliti Sambands íslenskra sveitarfélaga og óskum um tvöfalda námsvist hafnað.

6.Reglur um leikskólaþjónustu

Málsnúmer 2018020315Vakta málsnúmer

Endurskoðaðar reglur um leikskólaþjónustu hjá Akureyrarbæ lagðar fram til staðfestingar.
Fræðsluráð samþykkir framlagðar tillögur um breytingar á reglum um leikskólaþjónustu.

Fundi slitið - kl. 16:00.