Fræðsluráð

16. fundur 03. september 2018 kl. 13:30 - 16:00 Fundarsalur 1. hæð Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Heimir Haraldsson
  • Hildur Betty Kristjánsdóttir
  • Rósa Njálsdóttir
  • Þórhallur Harðarson
  • Þuríður Sólveig Árnadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar
  • Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
Dagskrá
Jörundur Guðni Sigurbjörnsson fulltrúi ungmennaráðs boðaði forföll og varamaður komst ekki í hans stað.
Sigurður Freyr Sigurðarson fulltrúi grunnskólakennara mætti ekki til fundar.

1.Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna - innleiðing

Málsnúmer 2014030109Vakta málsnúmer

Alfa Dröfn Jóhannsdóttir sérfræðingur á samfélagssviði og Hjördís Eva Þórðardóttir fulltrúi UNICEF komu á fundinn og kynntu næstu skref við innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna á Akureyri.

2.Verklagsreglur vegna nemenda með fjölþættan vanda

Málsnúmer 2018080875Vakta málsnúmer

Sigurbjörg Rún Jónsdóttir forstöðumaður þjónustu kom á fundinn og gerði grein fyrir drögum að verklagsreglum vegna nemenda með fjölþættan vanda.

3.Ytra mat á grunnskólum 2015-2020

Málsnúmer 2015050045Vakta málsnúmer

Bréf dagsett 16. ágúst 2018 frá mennta- og menningarmálaráðuneyti um ytra mat Brekkuskóla, þar sem ráðuneytið staðfestir móttöku úrbótaáætlunar skólans, var lagt fram til kynningar.

4.Endurskoðun skólastefnu 2018

Málsnúmer 2017080125Vakta málsnúmer

Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs kynnti stöðu vinnunnar við endurskoðun skólastefnu Akureyrarbæjar.

5.Myndlistaskólinn á Akureyri - ársreikningur 2017

Málsnúmer 2018070485Vakta málsnúmer

Bæjarráð hefur óskað eftir að fræðsluráð skipi fulltrúa í starfshóp um aðkomu Akureyrarbæjar að listnámi í bænum. Tilefnið er m.a. að samningur bæjarins við Myndlistaskólann á Akureyri um stuðning við starfsemina rennur út í lok skólaárs 2018-2019.
Fræðsluráð samþykkir að Ingibjörg Isaksen verði skipuð í hópinn.

6.Glerárskóli - vinnuhópur

Málsnúmer 2017080128Vakta málsnúmer

Umhverfis- og mannvirkjasvið óskar eftir að fræðsluráð tilnefni fulltrúa í vinnuhóp vegna nýbyggingar við Glerárskóla.
Fræðsluráð samþykkir að Ingibjörg Isaksen verði skipuð í hópinn.

7.Gjaldskrár fræðslusviðs 2019

Málsnúmer 2018080863Vakta málsnúmer

Lagðar voru fram til kynningar og umræðu tillögur að gjaldskrám fyrir árið 2019.
Umræðunni frestað til næsta fundar.

8.Fjárhagsáætlun fræðslusviðs 2019-2022

Málsnúmer 2018060289Vakta málsnúmer

Ingibjörg Isaksen formaður fræðsluráðs fór yfir drög að starfsáætlun fræðsluráðs fyrir árið 2019.

9.Rekstur fræðslumála 2018

Fundi slitið - kl. 16:00.