Bæjarráð

3242. fundur 21. október 2010 kl. 09:00 - 11:40 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Geir Kristinn Aðalsteinsson
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Ólafur Jónsson
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Hermann Jón Tómasson áheyrnarfulltrúi
  • Sigurður Guðmundsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Karl Guðmundsson bæjarritari
  • Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri
  • Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun íþróttaráðs 2011

Málsnúmer 2010080052Vakta málsnúmer

1. liður í fundargerð íþróttaráðs dags. 23. september 2010:
Lögð fyrir drög að gjaldskrám íþróttaráðs fyrir starfsárið 2011.
Meirihluti íþróttaráðs samþykkir fyrir sitt leyti fyrirliggjandi drög að gjaldskrám íþróttaráðs fyrir starfsárið 2011.
Pétur Maack Þorsteinsson greiðir atkvæði á móti afgreiðslunni.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrá fyrir Hlíðarfjall, en frestar afgreiðslu á öðrum gjaldskrám íþróttaráðs.

2.Oddeyrin - uppbygging

Málsnúmer 2010020003Vakta málsnúmer

Erindi dags. 30. september 2010 frá Guðmundi Hallvarðssyni stjórnarformanni f.h. stjórnar Sjómannadagsráðs þar sem vísað er í bréf dags. 16. febrúar 2010 til fyrrum bæjarstjóra. Stjórnin ítrekar það erindi þótt staðsetning væntanlegs hjúkrunarheimils verði á öðrum stað en þeim sem tiltekinn er í fyrrnefndu bréfi.

Bæjarráð felur bæjarstjóra og formanni bæjarráðs að vinna áfram að málinu.

3.Austurvegur 45 í Hrísey - gatnagerðargjald

Málsnúmer 2010100021Vakta málsnúmer

Erindi dags. 4. október 2010 frá Haraldi Hrafnssyni og Sólveigu Einarsdóttur eigendum hússins Bakka við Austurveg 45 í Hrísey, þar sem sótt er um niðurfellingu á gatnagerðargjaldi. Einnig er óskað eftir upplýsingum um það hversu margir byggingaraðilar í Hrísey hafi þurft að greiða sambærilegt gatnagerðargjald á þessu svæði.

Bæjarráð hafnar beiðni um niðurfellingu á gatnagerðargjaldi en bendir á reglur um afslátt af gjaldinu.

Bæjarráð bendir einnig á að gatnagerðargjald er skattur en ekki þjónustugjald.

Skipulagsstjóra falið að svara erindinu að öðru leyti.

4.Almannaheillanefnd

Málsnúmer 2008100088Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð almannaheillanefndar dags. 24. september 2010.

5.Myndlistaskólinn á Akureyri - endurnýjun samnings 2010

Málsnúmer 2010100045Vakta málsnúmer

Erindi dags. 7. október 2010 frá Helga Vilberg skólastjóra Myndlistaskólans á Akureyri f.h. skólanefndar Myndlistaskólans þar sem óskað er eftir endurnýjun samnings um rekstur skólans.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.

6.Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar bs - haustfundur 2010

Málsnúmer 2010100058Vakta málsnúmer

Erindi dags. 5. október 2010 frá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar bs, þar sem boðað er til haustfundar þann 27. október nk. kl. 14.00 í Hofi, Akureyri.
Akureyrarbær tilnefnir 6 fulltrúa á haustfundinn.

Bæjarráð tilnefnir eftirtalda bæjarfulltrúa á haustfundinn:

Höllu Björk Reynisdóttur, Odd Helga Halldórsson, Tryggva Gunnarsson, Andreu Sigrúnu Hjálmsdóttur, Hermann Jón Tómasson og Ólaf Jónsson.

7.Norðurorka hf - álit um kjörgengi stjórnarmanna

Málsnúmer 2010080081Vakta málsnúmer

Á fundi bæjarráðs 7. október 2010 spurðist Sigurður Guðmundsson fulltrúi A-lista fyrir um lögmæti skipunar í stjórn Norðurorku hf.
Lagt fram til kynningar minnisblað dags. 15. október 2010 frá Guðjóni Bragasyni sviðsstjóra lögfræðisviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga er varðar kjörgengi stjórnarmanna í Norðurorku.

8.Málþing um stöðu fámennra byggða

Málsnúmer 2010100085Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dags. 13. október 2010 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem kynnt er fyrirhugað málþing um stöðu fámennra byggða sem haldið verður af Sveitarfélaginu Skagafirði í samvinnu við samtökin Landsbyggðin lifi og íbúa í Fljótum. Málþingið verður haldið að Ketilási í Fljótum 30. október 2010 kl. 14:00.

9.Orkuvörður ehf - aðalfundur 2010

Málsnúmer 2010100110Vakta málsnúmer

Erindi dags. 13. október 2010 þar sem boðað er til aðalfundar Orkuvarðar ehf fimmtudaginn 21. október 2010 kl. 14:00 að Borgum, Akureyri.

Bæjarráð felur formanni bæjarráðs, Oddi Helga Halldórssyni, að fara með umboð Akureyrarbæjar á fundinum.

10.Önnur mál

Málsnúmer 2010010117Vakta málsnúmer

a) Sigurður Guðmundsson fulltrúi A-lista óskar bókað að hann spurðist fyrir um rammasamning við Ríkiskaup í tengslum við samninga við olíufélögin N1 og Olís.
Hagsýslustjóri, Jón Bragi Gunnarsson, svaraði fyrirspurn Sigurðar.

Fundi slitið - kl. 11:40.