Oddeyrin - uppbygging

Málsnúmer 2010020003

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3242. fundur - 21.10.2010

Erindi dags. 30. september 2010 frá Guðmundi Hallvarðssyni stjórnarformanni f.h. stjórnar Sjómannadagsráðs þar sem vísað er í bréf dags. 16. febrúar 2010 til fyrrum bæjarstjóra. Stjórnin ítrekar það erindi þótt staðsetning væntanlegs hjúkrunarheimils verði á öðrum stað en þeim sem tiltekinn er í fyrrnefndu bréfi.

Bæjarráð felur bæjarstjóra og formanni bæjarráðs að vinna áfram að málinu.