Bæjarráð

3758. fundur 10. febrúar 2022 kl. 08:15 - 10:57 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Gunnar Gíslason
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Hlynur Jóhannsson
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
  • Elín Dögg Guðjónsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður þjónustu og þróunar
Dagskrá
Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir V-lista mætti í forföllum Sóleyjar Bjarkar Stefánsdóttur.

1.Launastefna Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2020020479Vakta málsnúmer

Rætt um launa- og kjaramál hjá Akureyrarbæ.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri mannauðssviðs sat fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir að taka upp reglur um tímabundin viðbótarlaun og felur bæjarstjóra og sviðsstjóra mannauðssviðs að móta verklagsreglur um TV-einingar og leggja fyrir á næsta fundi bæjarráðs.

2.Samþætting þjónustu við börn - erindi frá nágrannasveitarfélögum

Málsnúmer 2022020127Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 1. febrúar 2022 frá sveitarstjórum Grýtubakkahrepps, Svalbarðsstrandarhrepps, Eyjafjarðarsveitar og Hörgársveitar. Erindið er til komið vegna nýrra laga um farsæld barna og þeirra kosta sem sveitarfélögin standa frammi fyrir við innleiðinguna.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

3.Bifreiðastæðasjóður - gjaldtaka

Málsnúmer 2019050628Vakta málsnúmer

Rætt um fyrirspurnir um undanþágur frá greiðslu í bifreiðastæði á gjaldskyldum svæðum.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda hjá umhverfis- og mannvirkjasviði sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir að ekki verði gefnar undanþágur frá greiðslu í gjaldskyld bifreiðastæði.

4.Austurbyggð 17 - ástand eldvarna

Málsnúmer 2022020271Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 4. febrúar 2022 frá Slökkviliði Akureyrar þar sem varað er við yfirvofandi lokun Austurbyggðar 17 vegna ágalla á eldvörnum í húsnæðinu.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Guðríður Erla Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð lítur ábendingar í eldvarnaskoðun slökkviliðsins alvarlegum augum og áréttar að við þeim verður brugðist án tafar. Um leið er gerð sú skilyrðislausa krafa að ríkið og/eða Heilsuvernd ehf. greiði kostnaðinn við þau verk sem þarf að vinna. Ótækt er að Akureyrarbær beri einn kostnað af óhjákvæmilegu viðhaldi og nauðsynlegum endurbótum á húseignum sem ríkið hefur afhent þriðja aðila til ráðstöfunar endurgjaldslaust án samráðs við Akureyrarbæ sem er skráður eigandi húsnæðisins. Er bæjarstjóra jafnframt falið að kanna lagalega stöðu Akureyrarbæjar varðandi eignarhald á húsinu.

5.Ráðhús - ástand húsnæðis og framtíðarsýn

Málsnúmer 2022011603Vakta málsnúmer

Lagt var fram minnisblað bæjarstjóra um málið.

Guðríður Erla Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð felur sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs og bæjarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við framlagt minnisblað.

6.Lóð Bifreiðastöðvar Oddeyrar (BSO)

Málsnúmer 2020090447Vakta málsnúmer

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri fór yfir stöðuna á viðræðum við BSO.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og forstöðumanni skipulagsmála að ganga til samninga við forsvarsmenn BSO.
Gunnar Gíslason vék af fundi kl. 10:26.

7.Menningarsjóður Akureyrar 2022 - styrkumsóknir

Málsnúmer 2022020273Vakta málsnúmer

Farið var yfir umsóknir um styrki úr Menningarsjóði 2022 og lagðar fram til umræðu tillögur um afgreiðslu þeirra.

Almar Alfreðsson verkefnastjóri menningarmála og Þórgnýr Dýrfjörð forstöðumaður atvinnu- og menningarmála sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögur með þeim breytingum sem ræddar voru á fundinum.
Halla Björk Reynisdóttir vék af fundi kl. 10:49.

8.Stjórn Norðurorku hf. - fundargerðir

Málsnúmer 2018110047Vakta málsnúmer

Lögð var fram til kynningar fundargerð 270. fundar stjórnar Norðurorku hf. dagsett 28. janúar 2022.

9.Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra SSNE - fundargerðir stjórnar 2022

Málsnúmer 2022011072Vakta málsnúmer

Lögð var fram til kynningar fundargerð 34. fundar stjórnar SSNE dagsett 28. janúar 2022.

10.Frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni innflytjenda, nr. 1162012 móttaka einstaklinga með vernd, innflytjendaráð, 271. mál

Málsnúmer 2022020188Vakta málsnúmer

Lagt var fram til kynningar erindi dagsett 2. febrúar 2022 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni innflytjenda, nr. 116/2012 (móttaka einstaklinga með vernd, innflytjendaráð), 271. mál 2022.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 18. febrúar nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/152/s/0380.html

Fundi slitið - kl. 10:57.