Ráðhús - endurbætur

Málsnúmer 2022011603

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3757. fundur - 03.02.2022

Farið yfir vinningstillögu um viðbyggingu við ráðhús og stöðu framkvæmda í húsinu í kjölfar vatnsleka í desember á síðasta ári.

Guðríður Erla Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs og Pétur Ingi Haraldsson skipulagsfulltrúi sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna greinargerð og leggja fyrir næsta fund ráðsins.

Bæjarráð - 3758. fundur - 10.02.2022

Lagt var fram minnisblað bæjarstjóra um málið.

Guðríður Erla Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð felur sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs og bæjarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við framlagt minnisblað.