Bæjarráð

3664. fundur 05. desember 2019 kl. 08:15 - 11:25 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Hlynur Jóhannsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri
  • Kristín Sóley Sigursveinsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar
Dagskrá

1.Akureyrarflugvöllur

Málsnúmer 2018010214Vakta málsnúmer

Kynnt skýrsla um Akureyrarflugvöll dagsett í nóvember 2019.

Sigmundur Ófeigsson framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar (AFE) og Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skýrsluhöfundur mættu á fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð þakkar fyrir góða skýrslu sem er mikilvægt gagn inn í umræðu um framtíð Akureyrarflugvallar. Athygli vekur að kostnaðartölur sem fram koma í þessari skýrslu eru mun lægri en verið hafa í umræðunni til þessa. Bæjarráð óskar eftir því að AFE hlutist til um að gerð verði úttekt á þjóðhagslegri hagkvæmni þess að opna aðra gátt inn í landið í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar.

2.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2020-2023

Málsnúmer 2019020276Vakta málsnúmer

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

3.Ársreikningur 2018 - ósk um viðbótarupplýsingar

Málsnúmer 2019100353Vakta málsnúmer

Bréf dagsett 28. nóvember 2019 frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga þar sem óskað er nánari upplýsinga um fyrirætlan bæjaryfirvalda í rekstri A-hluta sveitarfélagsins. Óskað er eftir að svör berist nefndinni að lokinni umræðu í bæjarstjórn, eigi síðar en 15. janúar nk.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra fjársýslusviðs að svara eftirlitsnefndinni.

4.Búsetusvið - möguleg kaup á fasteign við þjónustukjarna í Hafnarstræti

Málsnúmer 2019110309Vakta málsnúmer

Liður 6 í fundargerð velferðarráðs dagsettri 20. nóvember 2019:

Guðrún Guðmundsdóttir settur sviðsstjóri búsetusviðs lagði fram minnisblað um kaup á íbúð í nálægð við þjónustukjarna í Hafnarstræti 28-30.

Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri fjölskyldusviðs sat fundinn undir þessum lið.

Velferðarráð samþykkir tillögu um kaup á íbúð og vísar erindinu til bæjarráðs.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fjársýslusviðs að vinna málið áfram.

5.Viðtalstímar bæjarfulltrúa - fundargerðir 2019

Málsnúmer 2019010208Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dagsett 14. nóvember 2019.
Bæjarráð vísar lið 1 til fræðsluráðs og lið 3 til frístundaráðs. Liður 2 er lagður fram til kynningar.

6.Viðtalstímar bæjarfulltrúa - fundargerðir 2019

Málsnúmer 2019010208Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dagsett 28. nóvember 2019.
Bæjarráð vísar lið 1 til samfélagssviðs, liðum 2 og 4 til umhverfis- og mannvirkjasviðs og lið 3 til skipulagssviðs. Liður 5 er lagður fram til kynningar.

7.Hverfisráð Grímseyjar - fundargerðir 2010-2020

Málsnúmer 2010070098Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 34. fundar hverfisráðs Grímseyjar dagsett 27. nóvember 2019.

Fundargerðina má finna á netslóðinni: https://www.akureyri.is/is/stjornkerfi/stjornsysla/hverfisnefndir/grimsey/fundargerdir
Bæjarráð vísar fundargerðinni til umhverfis- og mannvirkjasviðs.

8.Stjórn Hafnasamlags Norðurlands bs. - fundargerðir 2019

Málsnúmer 2019030011Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Hafnasamlags Norðurlands bs. dagsett 27. nóvember 2019.

Fundargerðina er að finna á eftirfarandi slóð: https://www.port.is/isl/index.php?pid=167

9.Frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga og sveitarstjórnarlögum (forsendur úthlutana úr Jöfnunarsjóði), 391. mál

Málsnúmer 2019110529Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 29. nóvember 2019 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga og sveitarstjórnarlögum (forsendur úthlutana úr Jöfnunarsjóði), 391. mál 2019.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 9. desember nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/150/s/0524.html

Fundi slitið - kl. 11:25.