Frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga og sveitarstjórnarlögum (forsendur úthlutana úr Jöfnunarsjóði), 391. mál

Málsnúmer 2019110529

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3664. fundur - 05.12.2019

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 29. nóvember 2019 frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga og sveitarstjórnarlögum (forsendur úthlutana úr Jöfnunarsjóði), 391. mál 2019.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 9. desember nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/150/s/0524.html