Bæjarráð

3658. fundur 24. október 2019 kl. 08:15 - 12:56 Fundaraðstaða bæjarstjóra á 3. hæð Ráðhúss
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Halla Björk Reynisdóttir
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Gunnar Gíslason
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Hlynur Jóhannsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs
  • Kristín Sóley Sigursveinsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2020-2023

Málsnúmer 2019020276Vakta málsnúmer

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar.

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

Á fund ráðsins mættu undir þessum lið: við umræðu um fræðslumál Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður fræðsluráðs, Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs og Árni K. Bjarnason forstöðumaður rekstrar á fræðslusviði; við umræðu um velferðarmál Heimir Haraldsson formaður velferðarráðs; við umræðu um frístundamál Anna Hildur Guðmundsdóttir formaður frístundaráðs og Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs; við umræðu um málefni Akureyrarstofu Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs; við umræðu um umhverfis- og mannvirkjamál Andri Teitsson formaður umhverfis- og mannvirkjaráðs og Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs.
Hlynur Jóhannsson vék af fundi kl. 11:30.

2.Slökkvilið Akureyrar - samstarfssamningur

Málsnúmer 2019090221Vakta málsnúmer

Liður 1 í fundargerð umhverfis- og mannvirkjaráðs dagsettri 13. september 2019:

Lögð fram drög að samstarfssamningi milli SA og BSÞ.

Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti.

Málið var áður á dagskrá bæjarráðs 10. október sl. og var afgreiðslu þá frestað og óskað eftir minnisblaði frá slökkviliðsstjóra um samninginn.

Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður og Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð staðfestir samninginn með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum og felur slökkviliðsstjóra að undirrita hann.

3.Sameining almannavarnanefnda í Eyjafirði og Þingeyjarsýslu

Málsnúmer 2019100213Vakta málsnúmer

Rætt um hugmyndir um sameiningu almannavarnanefnda í Eyjafirði og Þingeyjarsýslu.

Halla Bergþóra Björnsdóttir lögreglustjóri á Norðurlandi eystra mætti á fund bæjarráðs undir þessum lið.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

4.Ársreikningur 2018 - ósk um viðbótarupplýsingar

Málsnúmer 2019100353Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 17. október 2019 þar sem Eiríkur Benónýsson f.h. eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga óskar eftir upplýsingum um meginástæður fyrir neikvæðri rekstrarafkomu Akureyrarbæjar á árinu 2018 umfram fjárhagsáætlun ásamt horfum í rekstri fyrir árið 2019.

Óskað er eftir að svör berist nefndinni eigi síðar en 16. nóvember nk.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fjársýslusviðs að svara erindinu í samræmi við umræður á fundinum.

5.Stjórn Hafnasamlags Norðurlands bs. - fundargerðir 2019

Málsnúmer 2019030011Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Hafnasamlags Norðurlands bs. dagsett 16. október 2019.

Fundargerðina er að finna á eftirfarandi slóð: https://www.port.is/isl/index.php?pid=167

6.Flugklasi - samstarf um millilandaflug til Norðurlands

Málsnúmer 2011060107Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrsla Hjalta Páls Þórarinssonar verkefnastjóra, dagsett 11. október 2019, um starf flugklasans Air 66N frá 1. apríl til 11. október 2019.

7.Jarðgöng undir Tröllaskaga

Málsnúmer 2019090283Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar greinargerð dagsett í september 2019 um fyrri hugmyndir og tillögur að jarðgöngum milli Skagafjarðar og Eyjafjarðar, tekin saman að ósk Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Akureyrarbæjar af Hreini Haraldssyni.

Fundi slitið - kl. 12:56.