Bæjarráð

3577. fundur 23. nóvember 2017 kl. 08:15 - 12:35 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Sigríður Huld Jónsdóttir
  • Matthías Rögnvaldsson
  • Gunnar Gíslason
  • Edward Hákon Huijbens
  • Preben Jón Pétursson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Elín Dögg Guðjónsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Elín Dögg Guðjónsdóttir skjalastjóri
Dagskrá
Edward Hákon Huijbens V-lista mætti í forföllum Sóleyjar Bjarkar Stefánsdóttur.

1.Bókun I í kjarasamningi kennara

Málsnúmer 2017060074Vakta málsnúmer

Farið var yfir Bókun 1 í kjarasamningi kennara.

Soffía Vagnsdóttir sviðsstjóri fræðslusviðs og Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið auk Dagbjartar Elínar Pálsdóttur formanns fræðsluráðs og Evu Hrundar Einarsdóttur bæjarfulltrúa.

2.Lífeyrissjóður starfsmanna Akureyrarbæjar - vinna samhliða töku lífeyris

Málsnúmer 2014080060Vakta málsnúmer

Farið var yfir málið.

Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð vísar málinu til kjarasamninganefndar og felur henni að móta tillögur að reglum vegna töku lífeyris samhliða starfi.

3.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2018 - gjaldskrár

Málsnúmer 2017040095Vakta málsnúmer

Lögð var fram tillaga að gjaldskrám Akureyrarbæjar 2018.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Afgeiðslu frestað til næsta fundar.

4.Álagning gjalda - útsvar 2018

Málsnúmer 2017110121Vakta málsnúmer

Lögð var fram tillaga um útsvarsprósentu í staðgreiðslu opinberra gjalda á árinu 2018 í Akureyrarkaupstað.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir að útsvarsprósenta verði 14,52%, fyrir árið 2018 og vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

5.Álagning gjalda - fasteignagjöld 2018

Málsnúmer 2017110123Vakta málsnúmer

Lögð var fram tillaga að álagningu fasteignagjalda á árinu 2018.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu um álagningu fasteignagjalda 2018 og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

6.Álagning gjalda - fasteignagjöld 2018 - reglur um afslátt

Málsnúmer 2017110123Vakta málsnúmer

Lögð var fram tillaga að reglum um afslátt elli- og örorkulífeyrisþega af fasteignaskatti 2018.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu að reglum um afslátt elli- og örorkulífeyrisþega af fasteignaskatti 2018 og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

7.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2018-2021

Málsnúmer 2017040095Vakta málsnúmer

Unnið var að gerð fjárhagsáætlunar.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

8.Fallorka - beiðni um ábyrgð Akureyrarbæjar vegna lántöku

Málsnúmer 2017110183Vakta málsnúmer

Lagt var fram erindi dagsett 15. nóvember 2017 frá Andra Teitssyni framkvæmdastjóra Fallorku ehf þar sem óskað var eftir að Akureyrarbær veitti ábyrgð og veð gagnvart Lánasjóði sveitarfélaga vegna láns til Fallorku ehf í evrum til 15 ára að jafnvirði 650 milljóna króna.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð leggur til að ábyrgðin verði veitt og vísar málinu til afgreiðslu í bæjarstjórn.

9.Bjarg íbúðafélag

Málsnúmer 2017100395Vakta málsnúmer

Lögð var fram viljayfirlýsing dagsett 23. nóvember 2017 milli Akureyrarbæjar og Bjargs íbúðafélags.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð staðfestir framlagða viljayfirlýsingu.

10.Jaðarsíða 2 - umsókn um lóð

Málsnúmer 2017110001Vakta málsnúmer

23. liður í fundargerð skipulagsráðs dagsett 15. nóvember 2017:

Erindi dagsett 31. október 2017 þar sem Sigfús Heiðarsson og Elfa Rán Rúnarsdóttir sækja um lóð nr. 2 við Jaðarsíðu. Meðfylgjandi er tilboð og yfirlýsing viðskiptabanka.

Skipulagsráð samþykkir að úthluta umsækjendum lóðinni. Deiliskipulagsskilmálar ásamt almennum byggingaskilmálum gilda. Umsókn um undanþágu frá gatnagerðargjöldum er vísað til bæjarráðs.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð hafnar ósk um undanþágu frá gatnagerðargjöldum og vísar í gjaldskrá gatnagerðargjalda í Akureyrarkaupstað og gr. 5.3 í gjaldskránni þar sem fjallað er um sérstaka lækkun vegna jarðvegsdýpis.

11.Jaðarsíða 17-23 - umsókn um lóð

Málsnúmer 2017060211Vakta málsnúmer

24. liður í fundargerð skipulagsráðs dagsett 15. nóvember 2017:

Erindi móttekið 9. nóvember 2017 þar sem Jón Ingi Sveinsson fyrir hönd Kötlu ehf., kt. 601285-0299, sækir um endurúthlutun á lóðinni nr. 17-23 við Jaðarsíðu. Meðfylgjandi er yfirlýsing viðskiptabanka. Vegna mikils jarðvegsdýpis á lóðinni býður umsækjandi fast verð í lóðina, gatnagerðargjald.

Skipulagsráð samþykkir að endurúthluta umsækjanda lóðinni. Deiliskipulagsskilmálar ásamt almennum byggingaskilmálum gilda. Umsókn um undanþágu frá gatnagerðargjöldum er vísað til bæjarráðs.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð hafnar ósk um undanþágu frá gatnagerðargjöldum og vísar í gjaldskrá gatnagerðargjalda í Akureyrarkaupstað og gr. 5.3 í gjaldskránni þar sem fjallað er um sérstaka lækkun vegna jarðvegsdýpis.

12.Viðtalstímar bæjarfulltrúa fundargerð

Málsnúmer 2017100376Vakta málsnúmer

Lögð var fram fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dagsett 16. nóvember 2017.
Bæjarráð vísar 1. lið til búsetusviðs, 2. og 4. lið til umhverfis- og mannvirkjasviðs 5. og 6. lið til fræðslusviðs, 3. liður er lagður fram til kynningar í bæjarráði

13.Hverfisráð Grímseyjar - fundargerð

Málsnúmer 2010070098Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð hverfisráðs Grímseyjar - íbúafundar, dagsett 17. október 2017.

14.Hverfisnefnd Lunda- og Gerðahverfis - fundargerð

Málsnúmer 2016010034Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir 62. og 63. fundar hverfisnefndar Lunda- og Gerðahverfis dagsettar 11. júní og 26. október 2017. Fundargerðirnar má finna á netslóðinni:

https://www.akureyri.is/is/stjornkerfi/stjornsysla/hverfisnefndir/lunda-og-gerdahverfi/fundargerdir

15.Starfshópur um heildaryfirferð regluverks um leigubifreiðaakstur - beiðni um umsögn

Málsnúmer 2017110173Vakta málsnúmer

Lagt var fram til kynningar erindi dagsett 14. nóvember 2017 frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu þar sem greint er frá skipan starfshóps um heildaryfirferð regluverks um leigubifreiðaakstur og óskað eftir mati Akureyrarkaupstaðar á áhrifum mögulegra breytinga á regluverkinu.

Fundi slitið - kl. 12:35.