Lagt fram minnisblað bæjarstjóra dags. 20. ágúst 2014 um vinnu samhliða töku lífeyris hjá Lífeyrissjóði starfsmanna Akureyrarbæjar. Halla Margrét Tryggvadóttir starfsmannastjóri mætti á fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir tillögu sem fram kemur í minnisblaðinu og felur bæjarstjóra að ganga frá málinu.
Eftirfarandi var bókað á fundi bæjarráðs 23. nóvember 2017:
Farið var yfir málið.
Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð vísar málinu til kjarasamninganefndar og felur henni að móta tillögur að reglum vegna töku lífeyris samhliða starfi.
Kjarasamninganefnd leggur til við bæjarráð að veitt verði heimild til töku lífeyris hjá Lífeyrisjóði starfsmanna Akureyrarbæjar samhliða starfi, í samræmi við tillögu að reglum þar um.
5. liður í fundargerð kjarasamninganefndar dagsett 26. janúar 2018:
Eftirfarandi var bókað á fundi bæjarráðs 23. nóvember 2017:
Farið var yfir málið.
Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð vísar málinu til kjarasamninganefndar og felur henni að móta tillögur að reglum vegna töku lífeyris samhliða starfi.
Kjarasamninganefnd leggur til við bæjarráð að veitt verði heimild til töku lífeyris hjá Lífeyrissjóði starfsmanna Akureyrarbæjar samhliða starfi, í samræmi við tillögu að reglum þar um.