Bæjarráð

3562. fundur 20. júlí 2017 kl. 08:15 - 12:27 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Sigríður Huld Jónsdóttir
  • Matthías Rögnvaldsson
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Sóley Björk Stefánsdóttir
  • Preben Jón Pétursson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs
  • Katrín Björg Ríkarðsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra
  • Elín Dögg Guðjónsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Elín Dögg Guðjónsdóttir fundarritari
Dagskrá
Eva Hrund Einarsdóttir D-lista mætti í forföllum Gunnars Gíslasonar.

1.Norðurslóðamál 2017

Málsnúmer 2017070047Vakta málsnúmer

Umræður um málefni norðurslóða.

2.EU-European Arctic Dialogue Seminar - boðsbréf

Málsnúmer 2017070024Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 4. júlí 2017 frá Háskólanum í Lapplandi þar sem bæjarstjóra er boðið á námskeiðið EU-European Arctic Dialogue Seminar sem fer fram í Brussel 21. nóvember næstkomandi.

3.Rovaniemi Artic Spirit Conference 2017

Málsnúmer 2017070049Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 29. júní 2017 frá bæjarstjóra Rovaniemi í Finnlandi þar sem bæjarstjóra Akureyrar er boðið á ráðstefnuna Rovaniemi Artic Spirit conference, sem fer fram 16.-17. nóvember næstkomandi.

4.Hlíðarfjall - starfsemi og rekstur - úthýsing

Málsnúmer 2014050114Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf dags. 19. júlí 2017 frá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar þar sem tilkynnt er að fyrsta áfanga verkefnisins við útvistun Hlíðarfjalls sé lokið. Það er mat Atvinnuþróunarfélagsins að ganga til samninga við hóp sem kallar sig Hlíðarfjall alla leið.

Sigmundur Einar Ófeigsson, framkvæmdastjóri AFE sat fundinn undir þessum lið.

Bæjarráð felur Atvinnuþróunarfélaginu að ganga til samstarfs við hópinn Hlíðarfjall alla leið um stofnun undirbúningsfélags sem mun vinna að undirbúningi og kostnaðargreiningu verkefnisins.

5.Eftirlitsmyndavélar á Akureyri

Málsnúmer 2017050095Vakta málsnúmer

Rætt um öryggismyndavélar á Akureyri.
Bæjarráð tekur jákvætt í að fjölga öryggismyndavélum í bænum og felur bæjarstjóra að ræða við lögreglustjóra og Neyðarlínuna um framhaldið.

6.Hlíðaból - uppsögn samnings

Málsnúmer 2016030139Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi dagsett 7. júlí 2017 frá formanni stjórnar Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri varðandi uppgjör á orlofsréttindum starfsmanna Hlíðarbóls við lokun leikskólans.
Bæjarráð felur Dan Jens Brynjarssyni, sviðsstjóra fjársýslusviðs og Árna Konráði Bjarnasyni, rekstrarstjóra fræðslusviðs að ræða við bréfritara og afla frekari gagna.

7.Fimleikafélag Akureyrar

Málsnúmer 2017070048Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi dagsett 5. júlí 2017 frá framkvæmdastjóra Fimleikafélags Akureyrar.
Bæjarráð felur Dan Jens Brynjarssyni, sviðsstjóra fjársýslusviðs og Ellerti Erni Erlingssyni, deildarstjóra íþróttamála að ræða við framkvæmdastjóra Fimleikafélagsins.
Dan Jens Brynjarsson, sviðsstjóri fjársýslusviðs vék af fundi kl. 11:20.

8.Samþykktir fastanefnda 2017

Málsnúmer 2017020082Vakta málsnúmer

Lagðar fram endurskoðaðar samþykktir fyrir velferðarráð, umhverfis- og mannvirkjaráð, stjórn Akureyrarstofu, skipulagsráð, fræðsluráð og frístundaráð.
Bæjarráð hefur fullnaðarafgreiðsluheimild í sumarleyfi bæjarstjórnar sbr. bókun í 7. lið fundargerðar bæjarstjórnar 6. júní 2017.



Bæjarráð samþykkir framlagðar samþykktir.

9.Stjórnsýslubreytingar 2016

Málsnúmer 2016090161Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri fór yfir stöðu stjórnsýslubreytinga.

Fundi slitið - kl. 12:27.