Bæjarráð

3484. fundur 26. nóvember 2015 kl. 08:30 - 12:20 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson formaður
  • Logi Már Einarsson
  • Matthías Rögnvaldsson
  • Gunnar Gíslason
  • Margrét Kristín Helgadóttir
  • Sóley Björk Stefánsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Heiða Karlsdóttir fundarritari
Dagskrá

1.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2016-2019

Málsnúmer 2015040196Vakta málsnúmer

Unnið að gerð fjárhagsáætlunar.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.

2.Fjárhagsáætlun 2016 - framkvæmdadeild

Málsnúmer 2015080078Vakta málsnúmer

1. liður í fundargerð framkvæmdaráðs dagsett 20. nóvember 2015:
Lögð fram fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2016-2019, sem tekin var til fyrri umræðu í bæjarstjórn 3. nóvember sl. og endurskoðun á rekstri Slökkviliðs Akureyrar m.t.t. sérfræðiaðstoðar.
Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri mætti á fundinn.
Framkvæmdaráð óskar eftir að sérfræðiþjónusta verði hækkuð hjá Slökkviliði Akureyrar um 1,5 milljónir króna og vísar því til bæjaráðs.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð vísar erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar.

3.Álagning gjalda - útsvar 2016

Málsnúmer 2015110155Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga um útsvarsprósentu í staðgreiðslu opinberra gjalda á árinu 2016 í Akureyrarkaupstað.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir hámarksútsvarsprósentu fyrir árið 2016 og vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

4.Álagning gjalda - fasteignagjöld 2016

Málsnúmer 2015110154Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að álagningu fasteignagjalda á árinu 2016.
Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu um álagningu fasteignagjalda 2016 og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

5.Listasafn - endurbætur

Málsnúmer 2014010168Vakta málsnúmer

Farið yfir fyrirhugaðar framkvæmdir á Listasafninu.
Guðríður Friðriksdóttir framkvæmdastjóri Fasteigna Akureyrarbæjar mætti á fund bæjarráðs undir þessum lið.
Einnig sat Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri fundinn undir þessum lið.

6.Drottningarbraut - framkvæmdir

Málsnúmer 2015110156Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu framkvæmda við Drottningarbraut.
Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur mætti á fund bæjarráðs undir þessum lið.
Einnig sat Dan Jens Brynjarsson fjármálastjóri fundinn undir þessum lið.

7.Ráðstefna - styrkbeiðni

Málsnúmer 2015110151Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 17. nóvember 2015 frá undirbúningshópi vegna ráðstefnunnar Enginn er eyland. Ísland og alþjóðasamfélagið - staða og framtíð Íslands í samfélagi þjóðanna. Ráðstefnuna halda AkureyrarAkademían og Háskólinn á Akureyri í samvinnu við utanríkisráðuneytið. Óskað er eftir að Akureyrarbær styrki ráðstefnuhaldið og undirbúning þess með beinu fjárframlagi að upphæð kr. 300.000.
Bæjarráð samþykkir styrk að upphæð kr. 150.000 sem færist af styrkveitingum bæjarráðs 2016.

8.Bæjarstjórn Akureyrar og borgarstjórn Reykjavíkur - samstarfsvettvangur

Málsnúmer 2013020193Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 9. nóvember 2015 frá Sóleyju Tómasdóttur forseta borgarstjórnar Reykjavíkur. Í erindinu er lagt til að næsti sameiginlegi fundur bæjarfulltrúa Akureyrarbæjar og borgarstjórnar Reykjavíkur verði haldinn í Reykjavík þann 4. mars 2016.

9.Northern Forum 2015

Málsnúmer 2015050178Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar þakkarbréf dagsett 16. nóvember 2015 frá Mikhail Pogodaev framkvæmdastjóra Northern Forum fyrir þátttöku fulltrúa Akureyrarbæjar í ráðstefnu sem haldin var 4.- 6. nóvember sl. í Yakutsk, Republic of Sakha (Yakutia), Russia.

10.Tillaga til þingsályktunar um stefnu og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum til fjögurra ára, 338. mál

Málsnúmer 2015110124Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 18. nóvember 2015 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um tillögu til þingsályktunar um stefnu og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum til fjögurra ára, 338. mál.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 4. desember 2015 á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/145/s/0405.html
Margrét Kristín Helgadóttir Æ-lista vék af fundi kl. 12:16.

Fundi slitið - kl. 12:20.