Velferðarráð

1347. fundur 12. janúar 2022 kl. 14:00 - 17:00 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Heimir Haraldsson formaður
  • Guðrún Karitas Garðarsdóttir
  • Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
  • Hermann Ingi Arason
  • Svava Þórhildur Hjaltalín
  • Sigrún Elva Briem áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðrún Ólafía Sigurðardóttir sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Kristín Birna Kristjánsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: María Sigurbjörg Stefánsdóttir
Dagskrá
Svava Þórhildur Hjaltalín D-Lista mætti í forföllum Láru Halldóru Eiríksdóttur.

1.Stjórnsýslubreytingar 2021 - samþykktir ráða og kynningar

Málsnúmer 2022010176Vakta málsnúmer

Farið yfir samþykkt fyrir velferðarráð sem samþykkt var í bæjarstjórn 14. desember 2021 og greinargerð vegna stjórnsýslubreytinga.

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri, Hulda Sif Hermannsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra og Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður sátu fundinn undir þessum lið.

2.Samþætting þjónustu barna

Málsnúmer 2021110226Vakta málsnúmer

Helga Vilhjálmsdóttir forstöðumaður skólaþjónustu og verkefnastjóri samþættingar þjónustu við börn gerði grein fyrir stöðu varðandi innleiðingu á lögum um samþætta þjónustu barna.

3.Heimaþjónusta B - aukin verkefni

Málsnúmer 2022010381Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi dagsett 6. janúar 2022 frá Elfu Björk Gylfadóttur forstöðumanni heimaþjónustu B þar sem gerð er grein fyrir auknum verkefnum nú í upphafi árs sem ekki er hægt að bregðast við miðað við óbreyttan mannafla.
Velferðarráð felur Guðrúnu Sigurðardóttur sviðsstjóra velferðarsviðs að vinna málið áfram.

4.NPA - tímagjald 2022

Málsnúmer 2021120903Vakta málsnúmer

Lögð er fram tillaga um breytingu á tímagjaldi í NPA fyrir árið 2022.

Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður skrifstofu velferðarsviðs sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð samþykkir hækkun á tímagjaldi NPA um 6,7% fyrir árið 2022. Tímagjaldið verður kr. 5.324.

5.Barnaverndarlög - breytingar

Málsnúmer 2022010395Vakta málsnúmer

Farið yfir breytingar á barnaverndarlögum og hvaða verkefni þær fela í sér.

Vilborg Þórarinsdóttir forstöðumaður barnaverndar sat fundinn undir þessum lið.

Fundi slitið - kl. 17:00.