Velferðarráð

1331. fundur 13. janúar 2021 kl. 14:00 - 16:20 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Heimir Haraldsson formaður
  • Róbert Freyr Jónsson
  • Hermann Ingi Arason
  • Inger Rós Ólafsdóttir
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Sigrún Elva Briem áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðrún Ólafía Sigurðardóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • María Sigurbjörg Stefánsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: María Sigurbjörg Stefánsdóttir
Dagskrá
Inger Rós Ólafsdóttir B-lista mætti í forföllum Gunnfríðar Elínar Hreiðarsdóttur.

1.Fjárhagserindi 2021

Málsnúmer 2021010234Vakta málsnúmer

Gyða Björk Ólafsdóttir félagsráðgjafi og Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður í félagsþjónustu sátu fundinn og kynntu tvær áfrýjanir í fjárhagsaðstoð.
Fjárhagserindi og afgreiðsla þeirra eru færð í trúnaðarbók velferðarráðs.

2.Sérstakur húsnæðisstuðningur 2020

Málsnúmer 2020090332Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit um sérstakan húsnæðisstuðning sem veittur var á árinu 2020.

Pálína Ásbjörnsdóttir húsnæðisfulltrúi og Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður í félagsþjónustu sátu fundinn undir þessum lið.

3.Leiguíbúðir Akureyrarbæjar 2020

Málsnúmer 2021010258Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit yfir stöðu leiguíbúða Akureyrarbæjar s.s. útleigu á árinu og biðlista eftir húsnæði.

Pálína Ásbjörnsdóttir húsnæðisfulltrúi og Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður í félagsþjónustu sátu fundinn undir þessum lið

4.Sérstakur húsnæðisstuðningur - lokaskýrsla um tilraunaverkefni

Málsnúmer 2020120480Vakta málsnúmer

Lögð fram lokaskýrsla frá Umhverfis og mannvirkjastofnun um sérstakan húsnæðisstuðning.

Pálína Ásbjörnsdóttir húsnæðisfulltrúi og Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður í félagsþjónustu sátu fundinn undir þessum lið.

5.Móttökusveitarfélög - beiðni félagsmálaráðuneytisins um þátttöku í tilraunaverkefni

Málsnúmer 2020110402Vakta málsnúmer

Tekið fyrir að nýju erindi frá félagsmálaráðuneytinu varðandi þátttöku í tilraunaverkefni um móttöku flóttafólks.

Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður í félagsþjónustu sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð lýsir yfir vilja til að taka þátt í verkefninu og vísar málinu til bæjarráðs.

6.Frumvarp til laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, 354. mál

Málsnúmer 2020120471Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 17. desember 2020 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, 354. mál 2020.

7.Frumvarp til laga um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, 356. mál

Málsnúmer 2020120473Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 17. desember 2020 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, 356. mál 2020.

8.Frumvarp til laga um Barna- og fjölskyldustofu, 355. mál

Málsnúmer 2020120472Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 17. desember 2020 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um Barna- og fjölskyldustofu, 355. mál 2020.

Fundi slitið - kl. 16:20.