Velferðarráð

1302. fundur 05. júní 2019 kl. 14:00 - 17:00 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Róbert Freyr Jónsson varaformaður
  • Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Sigrún Elva Briem áheyrnarfulltrúi
  • Sif Sigurðardóttir
Starfsmenn
  • Karólína Gunnarsdóttir forstöðumaður þjónustudeildar fjölskyldusviðs
  • Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri öa
  • Laufey Þórðardóttir sviðsstjóri búsetusviðs
  • Kristín Birna Kristjánsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Birna Kristjánsdóttir
Dagskrá
Sif Sigurðardóttir S-lista sat fundinn í forföllum Heimis Haraldssonar.

Sóley Björk Stefánsdótti bæjarfullltrúi óskaði eftir að sitja fundinn undir fyrsta lið og varð Róbert Freyr Jónsson varaformaður við þeirri ósk.

1.Velferðarráð - upplýsingafundur með lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra

Málsnúmer 2019060002Vakta málsnúmer

Velferðarráð óskaði eftir því við lögreglustjórann á Norðurlandi eystra að hann kæmi á fund ráðsins til að upplýsa ráðið um stöðu mála á svæðinu hvað varðar neyslu fíkniefna og glæpa tengdum þeim.

Halla Bergþóra Björnsdóttir lögreglustjóri á Norðulandi eystra og Jóhannes Sigfússon aðstoðaryfirlögregluþjónn komu og kynntu störf lögreglunnar.
Velferðarráð þakkar Höllu Bergþóru Björnsdóttur og Jóhannesi Sigfússyni kærlega fyrir góða kynningu á störfum lögreglunnar.

2.Áfangaheimili - undirbúningur

Málsnúmer 2019050635Vakta málsnúmer

Brýnt er að leysa húsnæðismál ungs fólks sem er að koma úr meðferð. Hugmyndir að framkvæmd hafa verið í vinnslu sl. ár.

Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður félagsþjónustu og Anna Hildur Guðmundsdóttir áfengis- og vímuefnaráðgjafi sátu fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð felur Karólínu Gunnarsdóttur settum sviðsstjóra fjölskyldusviðs og Önnu Marit Níelsdóttur forstöðumanni félagsþjónustu að vinna málið áfram.

3.Velferðarráð - rekstraryfirlit 2019

Málsnúmer 2019030355Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar rekstaryfirlit búsetusviðs, fjölskyldusviðs og Öldrunarheimila Akureyrar.

4.Fjárhagserindi 2019 - áfrýjanir

Málsnúmer 2019050634Vakta málsnúmer

Gyða Björk Ólafsdóttir félagsráðgjafi á fjölskyldusviði kynnti áfrýjun í fjárhagsaðstoð.

Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður félagsþjónustu sat fundinn undir þessum lið.
Fjárhagserindi og afgreiðsla þeirra eru færð í trúnaðarbók velferðarráðs.

5.Starfsáætlun velferðaráðs 2020

Málsnúmer 2019050646Vakta málsnúmer

Tekin til umræðu starfsáætlunargerð sviða ráðsins sem unnin er samhliða fjárhagsáætlunargerð.

6.Þróun náms og námsefnis um velferðartækni

Málsnúmer 2018010419Vakta málsnúmer

Lögð fram samantektarskýrsla um þróun náms og námsleiðir í velferðartækni. Skýrslan er unnin í maí 2019 af Ingunni Helgu Bjarnadóttur verkefnastjóra hjá Símey og Halldóri S. Guðmundssyni framkvæmdastjóra ÖA.

Skýrslan greinir frá þróun náms í velferðartækni en ÖA hefur verið í samstarfi við fleiri aðila og hafði fengið styrk frá velferðarráðuneytinu að upphæð kr. 1,2 milljónir, til að fylgja eftir þessu verkefni. Því telst nú lokið og er námsleiðin nú viðurkennt námskeið í framhaldsfræðslu og þar með er hægt að bjóða upp á námið fyrir markhóp í framhaldsfræðslu með aðkomu fræðslusjóðs.

7.Samskipti og lífsgæði - Memaxi samskiptalausn fyrir notendur í dagþjálfun og tímabundinni dvöl

Málsnúmer 2018010417Vakta málsnúmer

Á síðustu mánuðum hafa Öldrunarheimili Akureyrar unnið að þróunarverkefni með Memaxi um notkun þess í dagþjálfun og annarri þjónustu notenda dagþjálfunar utan ÖA. Verkefnið er m.a. unnið á grundvelli styrks til þróunarverkefnis sem velferðarráðuneytið veitti ÖA.

Nú liggja fyrir áform um að innleiða markvisst og hefja almennari notkun á Memaxi og að gera vinnslusamning samhliða því. Af því tilefni mætti Ingunn Ingimarsdóttir framkvæmdastjóri Memaxi og Erla Björk Helgadóttir starfsmaður í dagþjálfun og kynntu nýjungar og helstu notkunarmöguleika Memaxi, sem verið hafa í þróun og geta nýst þjónustuþegum ÖA, fjölskyldum þeirra og einnig samstarfsaðilum og sviðum sem veita þjónustu til sömu notenda (sjá nánar um á www.memaxi.is og á upplýsingum sem dreift var á fundinum).

8.Málefni í vinnslu og gögn frá SFV

Málsnúmer 2015040217Vakta málsnúmer

Framkvæmdastjóri ÖA, Halldór S. Guðmundsson, reifaði stöðu samningaviðræðna milli SFV og Sjúkratrygginga Íslands um rammasamning. Jafnframt kynnti hann stöðu viðræðna milli ÖA og Sjúkratrygginga Íslands um sérsamning vegna þróunarverkefnis um dagþjálfun sem heilbrigðisráðuneytið fól SÍ að gera við ÖA.

9.Samfella í þjónustu við aldraða

Málsnúmer 2017100451Vakta málsnúmer

Á grundvelli vinnu sem hófst í október 2016, hafa fulltrúar frá ÖA, HSN, SAk og búsetusviði, átt reglulega fundi til að vinna ábendingar og tillögur sem komu fram á vinnufundi starfsfólks þessara aðila sem haldinn var 4. maí 2018.

Auk ýmissa verkefna hefur verið unnið að undirbúningi málþings þar sem til umfjöllunar yrði þjónustan í heild sinni og markmiðið væri að miðla því hvaða þjónusta sé í boði á hinum ýmsu stöðum.

Nú liggja fyrir áform um málþing 10. október 2019, sem haldið yrði í Háskólanum á Akureyri, undir yfirskriftinni "Er gott að eldast á Norðurlandi/Akureyri?"

Fundi slitið - kl. 17:00.