Velferðarráð

1217. fundur 21. október 2015 kl. 14:00 - 17:10 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Sigríður Huld Jónsdóttir formaður
  • Halldóra Kristín Hauksdóttir
  • Róbert Freyr Jónsson
  • Svava Þórhildur Hjaltalín
  • Valur Sæmundsson
  • Guðrún Karitas Garðarsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðrún Ólafía Sigurðardóttir framkvæmdastjóri
  • Helga Guðrún Erlingsdóttir
  • Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri
  • Kolbeinn Aðalsteinsson fundarritari
Dagskrá

1.Trúnaðarmál

Málsnúmer 2015100097Vakta málsnúmer

Á fundinn mættu Helga Guðrún Erlingsdóttir hjúkrunarforstjóri ÖA og staðgengill framkvæmdastjóra, Jón Björnsson sálfræðingur og Brynja Vignisdóttir forstöðumaður Aspar- og Beykihlíðar. Kynntu þau lok vinnu við úrbætur á starfsanda og stjórnun sbr. tillögur sem unnar voru af ráðgjafafyrirtækinu Líf og sál.
Velferðarráð þakkar fyrir kynninguna.

2.Öldrunarheimili Akureyrar - gjafir

Málsnúmer 2014110182Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 13. október 2015 frá Þóru Sif Sigurðardóttur forstöðumanni Lögmannshlíðar á ÖA þar sem hún greinir frá veglegri gjöf frá Guðrúnu Kristinsdóttur íbúa í Lögmannshlíð. Gjöfin er göngubretti með loftlyftibúnaði sem staðsett er í þjálfunarherbergi Lögmannshlíðar.
Forstöðumaður hefur fært gefanda sérstakar þakkir f.h. íbúa og heimilisins.
Velferðarráð þakkar þessa höfðinglegu gjöf og felur framkvæmdastjóra að koma sérstökum þökkum til gefanda.

3.Öldrunarrými - biðlisti 2015

Málsnúmer 2015020099Vakta málsnúmer

Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar kynnti stöðu á biðlista eftir hjúkrunar- og dvalarrýmum á Öldrunarheimilum Akureyrar.
Fram kom að 32 einstaklingar eru á biðlista eftir hjúkrunarrými og 11 einstaklingar eftir dvalarrými. Enginn er á biðlista eftir dagþjálfun.

4.Velferðarráð - fjárhagsáætlun 2016

Málsnúmer 2015080062Vakta málsnúmer

Sigríður Huld Jónsdóttir formaður velferðarráðs kynnti drög að eyðublaði fjárhagsáætlun, jafréttismat á hagræðingartillögum dagsett 13. október 2015.
Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar og Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldudeild kynntu eitt verkefni sem dæmi um hagræðingarverkefni.
Lagt fram til umræðu og kynningar.

5.Leiguíbúðir Akureyrarbæjar - leiguverð

Málsnúmer 2015100111Vakta málsnúmer

Soffía Lárusdóttir framkvæmdastjóri búsetudeildar og Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri á fjölskyldudeild kynntu drög að skilgreiningum á sértæku félagslegu leiguhúsnæði fyrir fatlað fólk og hugmyndir að leiguverði dagsett 21. október 2015.

6.Leiguíbúðir Akureyrarbæjar 2015

Málsnúmer 2015010057Vakta málsnúmer

Jón Heiðar Daðason húsnæðisfulltrúi húsnæðisdeildar kynnti stöðuna á biðlista eftir leiguhúsnæði Akureyrarbæjar 30. september 2015.

7.Fjölskyldudeild - einstaklingsmál 2015

Málsnúmer 2015010173Vakta málsnúmer

Áframhaldandi umræða frá síðasta fundi um málefni einstaklings.
Málefni einstaklinga eru vistuð í trúnaðarbók velferðarráðs.

8.Framkvæmd reglugerðar nr. 584/2010 um sérfræðiþjónustu sveitarfélaga í leik- og grunnskólum

Málsnúmer 2013040005Vakta málsnúmer

Lögð fram úttekt á fyrirkomulagi og framkvæmd sérfræðiþjónustu í sex sveitarfélögum dagsett 23. september 2015. Unnið fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið í desember 2013. Áætlun frá Akureyrarbæ vegna tillagna um aðgerðir til úrbóta.

9.Verkefnastjóri velferðarstefnu

Málsnúmer 2015090259Vakta málsnúmer

Sigríður Huld Jónsdóttir formaður velferðarráðs fór yfir stöðu ráðningar verkefnastjóra velferðarstefnu.
Formaður greindi frá ráðningu verkefnastjóra við gerð velferðarstefnu Akureyrarbæjar Önnu Lilju Björnsdóttur sem mun hefja störf um mánaðarmót.

Fundi slitið - kl. 17:10.