Umhverfis- og mannvirkjaráð

152. fundur 19. desember 2023 kl. 08:15 - 11:43 Fundarherbergi UMSA
Nefndarmenn
  • Andri Teitsson formaður
  • Inga Dís Sigurðardóttir
  • Þórhallur Harðarson
  • Óskar Ingi Sigurðsson
  • Hilda Jana Gísladóttir
  • Jón Hjaltason áheyrnarfulltrúi
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Anton Bjarni Bjarkason áheyrnarfulltrúi ungmennaráðs
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri
Dagskrá

1.Samningur um sjúkraflug - 2019-2021 - Sjúkratryggingar Íslands

Málsnúmer 2019020255Vakta málsnúmer

Staðan á samningum við Sjúkratryggingar Íslands rædd.

Gunnar Rúnar Ólafsson slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Akureyrar sat fundinn undir þessum lið.

2.Brunavarnaáætlun Slökkviliðs Akureyrar 2023-2027

Málsnúmer 2023121003Vakta málsnúmer

Staðan á Brunavarnaáætlun Slökkviliðs Akureyrar 2023-2027 rædd.

Gunnar Rúnar Ólafsson slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Akureyrar sat fundinn undir þessum lið.

3.UMSA - endurnýjun bifreiða og tækja

Málsnúmer 2022090104Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 15. desember 2023 varðandi sölu á gömlum tækjum hjá umhverfismiðstöð.

Georg Fannar Haraldsson verkefnastjóri á rekstrardeild sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að tækin verði seld til hæstbjóðanda, ef hæstbjóðandi fellur frá sínu tilboði þá verði tækið boðið þeim bjóðanda sem var með næsta hæsta boð að kaupa tækið.

4.Ráðhús - viðhaldsáætlun

Málsnúmer 2023040413Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 15. desember 2023 varðandi gerð brunaflóttastiga við Ráðhúsið á Akureyri.

Ævar Guðmundsson verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka tilboði frá lægstbjóðanda Vélsmiðju Steindórs í brunastigann að upphæð kr. 19.278.578. Heildarkostnaðaráætlun fyrir verkið er kr. 35 milljónir og óskar umhverfis- og mannvirkjaráð eftir því við bæjarráð að áætlun fyrir verkefnið verði færð frá árinu 2023 til 2024.

5.Leikskóli í Hagahverfi

Málsnúmer 2023010583Vakta málsnúmer

Staðsetning á leikskólanum í Hagahverfi rædd.

6.Notkun nagladekkja

Málsnúmer 2023120856Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 14. desember 2023 varðandi notkun nagladekkja frá 1975 til 2023.

Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar sat fundinn undir þessum lið.

7.Brú yfir Glerá - Skarðshlíð_Glerártorg

Málsnúmer 2022120693Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 15. desember 2023 varðandi göngu- og hjólabrú yfir Glerá ásamt jöfnunarstöð Strætisvagna Akureyrar.

Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar og Ævar Guðmundsson verkefnastjóri nýframkvæmda sátu fundinn undir þessum lið.
Þar sem um er að ræða framkvæmd sem er samofin öðrum framkvæmdum og skipulagi, þá felur umhverfis- og mannvirkjaráð sviðsstjóra að gera heildstæða, tímasetta framkvæmda- og kostnaðaráætlun í samráði við hagaðila t.d. skipulagsráð, bæjarráð, Vegagerðina, Norðurorku og aðrar veitur. Áætlunin verði lögð fyrir umhverfis- og mannvirkjaráð í febrúar 2024.

8.Krossanesborgir

Málsnúmer 2023120850Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 18. desember 2023 varðandi Krossanesborgir og möguleg stækkun svæðisins til austurs rædd.

Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri á umhverfisdeild sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð óskar eftir því að skipulagsráð skoði þann valmöguleika að skipuleggja svæði austan Krossanesborga og niður að sjó sem útivistarsvæði. Markmiðið er að tryggja betra útivistarsvæði og aðgengi almennings að óraskaðri strandlengju.

9.Stígar 2023 og 2024

Málsnúmer 2023120853Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 18. desember 2023 varðandi stígagerð á árinu 2023 og 2024.

Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri á umhverfisdeild sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð felur sviðsstjóra að leita leiða til að kynna enn betur fjölbreytt útivistarstíga- og svæði í sveitarfélaginu.

10.Úrgangsmál - fyrirkomulag og útboð

Málsnúmer 2022110167Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 18. desember 2023 varðandi opnun tilboða í hirðu úrgangs við heimili á Akureyri.

Ísak Már Jóhannesson verkefnastjóri úrgangs- og loftlagsmála og Georg Fannar Haraldsson verkefnastjóri á rekstrardeild sátu fundinn undir þessum lið.
Umhverfis og mannvirkjaráð samþykkir að hefja samningsviðræður við lægstbjóðanda, Terra umhverfisþjónustu hf., tilboðsblað 1, um dreifingu íláta og hirðu úrgangs við heimili á Akureyri með þeim fyrirvara að lægstbjóðanda standist útboðskröfur.

11.Svifryksmælingar

Málsnúmer 2022110574Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 14. desember 2023 varðandi loftgæðamæla við leikskóla á Akureyri.

Ísak Már Jóhannesson verkefnastjóri úrgangs- og loftlagsmála sat fundinn undir þessum lið.

12.Verklagsreglur um aðgerðir gegn loftmengun utandyra

Málsnúmer 2023120848Vakta málsnúmer

Lögð fram 2023 útgáfa af verklagsreglum um aðgerðir gegn loftmengun utandyra.

Ísak Már Jóhannesson verkefnastjóri úrgangs- og loftlagsmála sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir verklagsreglur um aðgerðir gegn loftmengun utandyra og felur sviðsstjóra að upplýsa bæjarstjórn um niðurstöðuna.

13.UMSA rekstur 2023

Málsnúmer 2023050638Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 18. desember 2023 varðandi rekstur deilda umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar.

Fundi slitið - kl. 11:43.