Krossanesborgir

Málsnúmer 2023120850

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 152. fundur - 19.12.2023

Lagt fram minnisblað dagsett 18. desember 2023 varðandi Krossanesborgir og möguleg stækkun svæðisins til austurs rædd.

Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri á umhverfisdeild sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð óskar eftir því að skipulagsráð skoði þann valmöguleika að skipuleggja svæði austan Krossanesborga og niður að sjó sem útivistarsvæði. Markmiðið er að tryggja betra útivistarsvæði og aðgengi almennings að óraskaðri strandlengju.