Umhverfis- og mannvirkjaráð

120. fundur 20. maí 2022 kl. 08:15 - 09:55 Fundarherbergi UMSA
Nefndarmenn
  • Andri Teitsson formaður
  • Unnar Jónsson
  • Sunna Hlín Jóhannesdóttir
  • Þórhallur Harðarson
  • Berglind Bergvinsdóttir
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
  • Anton Bjarni Bjarkason vara-áheyrnarfulltrúi ungmennaráðs
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri
Dagskrá
Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi V-lista boðaði forföll fyrir sig og varamann sinn.
Anton Bjarni Bjarkason áheyrnarfulltrúi ungmennaráðs mætti í forföllum Alexíu Lindar Ársælsdóttur.

1.Gjaldskrár UMSA 2022

Málsnúmer 2021081199Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 19. maí 2022 varðandi endurskoðun á gjaldskrá nokkurra tækja á umhverfismiðstöð.

Arnór Þorri Þorsteinsson verkefnastjóri á umhverfismiðstöð og Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar og umhverfismiðstöðvar sátu fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir hækkun á gjaldskrá nokkurra tækja á umhverfismiðstöð.

2.Umhverfismiðstöð - reglubundin endurnýjun tækja 2021-2022

Málsnúmer 2021040823Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 16. maí 2022 varðandi opnun tilboða í vinnuflokkabíl og dráttarvél fyrir umhverfismiðstöð.

Arnór Þorri Þorsteinsson verkefnastjóri á umhverfismiðstöð og Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar og umhverfismiðstöðvar sátu fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð hafnar öllum tilboðum í dráttarvél og vinnuflokkabíl og felur umhverfis- og mannvirkjasviði að vinna málið áfram.

3.Snjómokstur og hálkuvarnir - útboð 2019

Málsnúmer 2019010353Vakta málsnúmer

Tekið fyrir ákvæði í snjómoksturssamningum frá árinu 2019 varðandi framlengingu á samningum um eitt ár.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að framlengja samninga í snjómokstri um eitt ár.

4.Glerárskóli - endurbætur A-álmu

Málsnúmer 2022020337Vakta málsnúmer

Tekin fyrir niðurstaða frá opnun tilboða dagsett 11. maí 2022 varðandi framkvæmdir við A-álmu Glerárskóla. Eitt tilboð barst og var það 157% af kostnaðaráætlun.

Sigurður Gunnarsson verkefnastjóri nýframkvæmda sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð hafnar tilboði í endurbætur og viðbyggingu á A-álmu Glerárskóla.

5.Oddeyrarskóli - lóð

Málsnúmer 2022042022Vakta málsnúmer

Fyrirhugaðar framkvæmdir við lóð Oddeyrarskóla ræddar.

6.Glerárgil - zip lína

Málsnúmer 2021080749Vakta málsnúmer

Lögð fram gögn varðandi verkefnið og framkvæmd þess.
Umhverfis- og mannvirkjaráð tekur vel í verkefnið og felur umhverfis- og mannvirkjasviði að gera samning við rekstraraðila til ákveðins tíma og setja skilyrði fyrir rekstri.

7.Laxagata 5

Málsnúmer 2022051060Vakta málsnúmer

Lagt fram kauptilboð Akureyrarbæjar dagsett 19. maí 2022 varðandi kaup á Laxagötu 5, Akureyri.
Umhverfis- og mannvirkjaráð tekur vel í kauptilboðið og vísar því til afgreiðslu í bæjarráði.

Fundi slitið - kl. 09:55.