Umhverfis- og mannvirkjaráð

98. fundur 16. apríl 2021 kl. 08:15 - 11:15 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Andri Teitsson formaður
  • Unnar Jónsson
  • Tryggvi Már Ingvarsson
  • Þórunn Sif Harðardóttir
  • Berglind Bergvinsdóttir
  • Jana Salóme I. Jósepsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri
Dagskrá
Tryggvi Már Ingvarsson B-lista mætti í forföllum Gunnfríðar Elínar Hreiðarsdóttur.
Þórunn Sif Harðardóttir D-lista mætti í forföllum Sigurjóns Jóhannessonar.

1.Holtahverfi - gatnagerð og lagnir

Málsnúmer 2021023068Vakta málsnúmer

Minnisblað dagsett 13. apríl 2021 varðandi framkvæmdir í Holtahverfi lagt fram.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar og Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda sátu fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að framkvæmdum við Holtahverfi verði flýtt til þess að fyrstu lóðir verði tilbúnar í febrúar 2022. Tilfærslu fjármagns á milli ára vegna flýtingarinnar er vísað til bæjarráðs.

2.Bílastæðasjóður - gjaldtaka

Málsnúmer 2019050628Vakta málsnúmer

Lögð fram minnisblöð dagsett 9. apríl 2021 varðandi gjaldtöku á bílastæðum á Akureyri.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar og Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda sátu fundinn undir þessum lið.

3.Nýframkvæmdir umhverfismála 2021

Málsnúmer 2021040672Vakta málsnúmer

Lögð fram minnisblöð dagsett 15. apríl 2021 varðandi nýframkvæmdir í umhverfismálum 2021.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar sat fundinn undir þessum lið.

4.Samkomulag við Meindýravarnir Eyjafjarðar

Málsnúmer 2021040669Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að samningi dagsettum 15. apríl 2021 við Meindýravarnir Eyjafjarðar varðandi meindýravarnir á Akureyri.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- mannvirkjaráð samþykkir drögin og felur forstöðumanni umhverfis- og sorpdeildar að vinna málið áfram.

5.Ráðhúsið á Akureyri

Málsnúmer 2021011696Vakta málsnúmer

Lögð fram niðurstaða forvalsnefndar dagsett 13. apríl 2021 varðandi forval fyrir boðskeppni vegna viðbyggingar við Ráðhúsið á Akureyri, endurbætur á hluta núverandi húss og endurhönnun á lóð og aðkomu Ráðhússins.

Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar sat fundinn undir þessum lið.

6.Lundarskóli - húsgögn

Málsnúmer 2021040663Vakta málsnúmer

Umsögn og niðurstaða vegna útboðs á húsgagnakaupum fyrir Lundarskóla dagsett 14. apríl 2021 lögð fyrir ráðið.

Georg Fannar Haraldsson verkefnastjóri á rekstrardeild sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga til samninga við Bústoð um kaup á húsgögnum fyrir Lundarskóla.

7.Akstur fyrir ferliþjónustu SVA - verðkönnun

Málsnúmer 2021031546Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 15. apríl 2021 varðandi niðurstöðu útboðs um akstur fyrir ferliþjónustu um helgar og á álagstímum.

Hrafn Svavarsson forstöðumaður umhverfismiðstöðvar sat fundin undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að gengið til samninga við 3 bjóðendur í hverjum lið (a, b og d) en hafna öllum tilboðum í lið c vegna mistaka og verður hann boðinn út aftur síðar.

8.Talningakerfi í strætisvagna SVA

Málsnúmer 2021040823Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 15. apríl 2021 varðandi kaup á talningakerfi í strætisvagna SVA.

Hrafn Svavarsson forstöðumaður umhverfismiðstöðvar sat fundin undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir kaupin og rúmast þau innan eignfærsluáætlunar.

9.Startpallar í Sundlaug Akureyrar

Málsnúmer 2021031031Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni frá frístundaráði vegna Sundlaugar Akureyrar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir beiðni frá frístundaráði vegna Sundlaugar Akureyrar að fjárhæð kr. 7 milljónir.

Fundi slitið - kl. 11:15.