Umhverfis- og mannvirkjaráð

46. fundur 07. desember 2018 kl. 08:15 - 11:20 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Andri Teitsson formaður
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Jóhann Jónsson
  • Gunnar Gíslason
  • Berglind Bergvinsdóttir
  • Ólafur Kjartansson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar
  • Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála
  • Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda
  • Hildigunnur Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar
  • Ketill Sigurður Jóelsson fundarritari
Fundargerð ritaði: Ketill Sigurður Jóelsson verkefnastjóri á rekstrardeild
Dagskrá
Berglind Bergvinsdóttir M-lista mætti í forföllum Jóhönnu Sólrúnar Norðfjörð.
Ólafur Kjartansson V-lista mætti í forföllum Jönu Salóme I. Jósepsdóttur.

1.Snjómokstur í bæjarlandinu

Málsnúmer 2018120024Vakta málsnúmer

Tekin fyrir fyrirspurn bæjarfulltrúa Gunnars Gíslasonar D-lista um snjómokstur í bæjarlandinu. Lagt fram minnisblað 1 dagsett 5. desember 2018 og minnisblað 2 dagsett 6. desember 2018. Forgangsröðun snjómoksturs má sjá á slóðinni: http://map.is/akureyri/

Við umræðu þessa dagskrárliðar leitaði formaður afbrigða til að taka á dagskrá málið Snjómokstur 2018 - viðauki við fjárhagsáætlun, sem verði 2. liður á dagskrá og var það samþykkt með 5 samhljóða atkvæðum.

Jónas Vigfússon, Jón Hansen og Gunnþór Hákonarson frá Umhverfismiðstöð sátu fundinn undir þessum lið.

2.Snjómokstur 2018 - viðauki við fjárhagsáætlun

Málsnúmer 2018120059Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun 2018 að upphæð 50 milljónir króna.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að sækja um viðauka við fjárhagsáætlun 2018 að upphæð 50 milljónir.

3.Umhverfismiðstöð - rekstur tækja og véla

Málsnúmer 2018120028Vakta málsnúmer

Lögð fram skýrsla um rekstur véla og tækja á Umhverfismiðstöð á árunum 2015-2018 dagsett 4. desember 2018.

4.Aksturssvæði við Hlíðarfjallsveg - umgengni vélhjólamanna KKA

Málsnúmer 2018120029Vakta málsnúmer

Fyrirspurn frá Ólafi Kjartanssyni V-lista vegna umgengni vélhjólamanna KKA á svæðinu sem þeir fengu aukalega á milli skotsvæðis og Hlíðarfjallsvegar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð lýsir áhyggjum á ástandi gróðurfars á svæðinu og óskar eftir því að tekin verði upp umræða við skipulagssvið, frístundasvið og hlutaðeigandi aðila um að settar verði upp verklagsreglur um notkun svæðisins.

5.Sala tækja 2018 - Umhverfismiðstöð

Málsnúmer 2018110235Vakta málsnúmer

Lögt fram fundargerð 5. fundar tækjakaupanefndar dagsetta 22. nóvember 2018.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka tilboðum hæstbjóðenda.

6.Kjarnaskógur - strandblaksvellir

Málsnúmer 2018050182Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 5. desember 2018 vegna endurnýjunar á sandi í tveimur strandblaksvöllum síðastliðið sumar.

7.Samningur um vöktun á urðnunarstað Akureyrarbæjar á Glerárdal

Málsnúmer 2018120030Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að verksamningi um vöktun á urðunarstað Akureyrarbæjar á Glerárdal dagsett 4. desember 2018. Einnig lögð fram minnisblöð frá ÍSOR dagsett 7. júní 2018 og 21. september varðandi vöktunina.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlögð drög að verksamningi við Ísor um vöktun á urðunarstað Akureyrarbæjar á Glerárdal.
Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála vék af fundi.

8.Umhverfis- og samgöngustefna Akureyrarbæjar - verkefni UMSA

Málsnúmer 2018080975Vakta málsnúmer

Umræða um stöðu verkefna UMSA.

9.Ytra-Krossanes - framtíðarsýn

Málsnúmer 2018120027Vakta málsnúmer

Rætt um framtíðarsýn fyrir Ytra-Krossanes.
Umhverfis- og mannvirkjaráð frestar afgreiðslu málsins til 14. desember.

10.Fjárhagsáætlun umhverfis- og mannvirkjasviðs 2019

Málsnúmer 2018080973Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fjárhagsáætlun umhverfis- og mannvirkjasviðs fyrir árið 2019 og til afgreiðslu framkvæmdaráætlun 2019-2022.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framkvæmdaráætlun 2019-2022 og vísar henni til afgreiðslu í bæjarstjórn.

11.Verkfundargerðir 2018

Málsnúmer 2018010235Vakta málsnúmer

Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram á fundinum:

Glerárskóli leikskóli: 14. fundargerð verkefnisliðs dagsett 28. nóvember 2018.

Hlíðarskóli stækkun: 7. og 8. verkfundur dagsettir 27. nóvember og 4. desember 2018.

Naustahverfi Hagar: 20. verkfundur dagsettur 21. nóvember 2018.

Fundi slitið - kl. 11:20.