Snjómokstur í bæjarlandinu

Málsnúmer 2018120024

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 46. fundur - 07.12.2018

Tekin fyrir fyrirspurn bæjarfulltrúa Gunnars Gíslasonar D-lista um snjómokstur í bæjarlandinu. Lagt fram minnisblað 1 dagsett 5. desember 2018 og minnisblað 2 dagsett 6. desember 2018. Forgangsröðun snjómoksturs má sjá á slóðinni: http://map.is/akureyri/

Við umræðu þessa dagskrárliðar leitaði formaður afbrigða til að taka á dagskrá málið Snjómokstur 2018 - viðauki við fjárhagsáætlun, sem verði 2. liður á dagskrá og var það samþykkt með 5 samhljóða atkvæðum.

Jónas Vigfússon, Jón Hansen og Gunnþór Hákonarson frá Umhverfismiðstöð sátu fundinn undir þessum lið.

Bæjarstjórn - 3446. fundur - 11.12.2018

Rætt um fyrirkomulag og forgangsröðun snjómoksturs í bæjarlandinu og á þjóðvegi 1.

Andri Teitsson hóf umræðuna og fór meðal annars yfir viðbrögð innan bæjarkerfisins við óvenjumikilli snjókomu á stuttum tíma á síðustu vikum.

Í umræðum tóku einnig til máls Sóley Björk Stefánsdóttir, Gunnar Gíslason, Ingibjörg Ólöf Isaksen, Þórhallur Jónsson, Guðmundur Baldvin Guðmundsson og Hlynur Jóhannsson.

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 52. fundur - 15.03.2019

Lagt fram minnisblað dagsett 13. mars 2019 varðandi ferlivöktun vegna snjómoksturs og hálkuvarna.

Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála og Jónas Vigfússon forstöðumaður Umhverfismiðstöðvar sátu fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að settur verði upp ferlivöktunarbúnaður í snjómoksturstækjum göngustíga. Áætlaður kostnaður er 1,25 milljónir króna.

Bæjarstjórn - 3462. fundur - 05.11.2019

Umræða um snjómokstur á Akureyri að ósk Gunnars Gíslasonar D-lista. Óskað er eftir svörum frá meirihlutanum um stefnu hans í snjómokstri. Hefur stefnan breyst frá því sem verið hefur undanfarin ár? Ef svo er, þá hvernig? Ef stefnan hefur ekki breyst, hvað olli þá því að mokstri var svo illa sinnt sem raun bar vitni undanfarnar vikur?

Gunnar Gíslason hóf umræðuna. Auk hans tóku til máls Andri Teitsson og Sóley Björk Stefánsdóttir.
Eva Hrund Einarsdóttir D-lista, Gunnar Gíslason D-lista, Hlynur Jóhannsson M-lista, Sóley Björk Stefánsdóttir V-lista og Þórhallur Jónsson D-lista leggja fram eftirfarandi bókun:

Þegar upplýsingar um snjómokstur og hálkuvarnir á heimasíðu Akureyrarbæjar eru skoðaðar verður ekki annað séð en að það skuli vandað til verka og þar er forgangsröðunin skýr með hagsmuni barna í brennidepli. Það kemur hins vegar ekkert fram um það hvenær sé eðlilegt að byrja verkið þegar snjóar, sem hlýtur að vera frekar til vansa í ljósi þess hvernig snjómokstri var sinnt eða ekki sinnt í síðastliðinni viku. Það er skoðun okkar að snjómokstur og hálkuvarnir séu hluti af grunnþjónustu sveitarfélagsins og það hljóti alltaf að vera krafa um að öryggi vegfarenda, gangandi, hjólandi og akandi sé tryggt að teknu tilliti til aðstæðna. Öryggi í umferðinni felst í því að gangandi og hjólandi vegfarendur og þá sérstaklega börn haldi sig á gangstígum og gangstéttum meðfram akbrautum. Til þess að svo sé er grundvallar atriði að hreinsa og hálkuverja göngustíga og gangstéttir. Það á ekkert síður við um göturnar þar sem hætta á árekstrum og ákeyrslum vex mikið ef götur eru ekki ruddar og hálkuvarðar þar sem við á. Það getur aldrei verið réttlætanlegt að setja líf, limi og eignir íbúa í þá hættu sem skapaðist í síðustu viku vegna þess að ekki var staðið eðlilega að snjómokstri og hálkuvörnum. Það getur aldrei verið réttlætanlegt að spara fjármuni á þennan hátt fyrir Akureyrarbæ en auka útgjöld og þjáningar þeirra íbúa sem verða fyrir slysum og eignatjóni. Af þessu má ljóst vera að það er nauðsynlegt að skerpa á stefnu Akureyrarbæjar svo þetta ástand skapist ekki aftur hér í bæ.