Umhverfis- og mannvirkjaráð

35. fundur 26. júní 2018 kl. 08:15 - 10:10 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Andri Teitsson formaður
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen
  • Jóhann Jónsson
  • Gunnar Gíslason
  • Jóhanna Sólrún Norðfjörð
  • Ólafur Kjartansson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðríður Friðriksdóttir sviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
  • Tómas Björn Hauksson forstöðumaður nýframkvæmda
  • Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Dóra Sif Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar
Dagskrá
Ólafur Kjartansson V-lista mætti í forföllum Jönu Salóme I. Jósepsdóttur.

1.Slökkvilið Akureyrar - ráðning aðstoðarslökkviliðsstjóra 2018

Málsnúmer 2018060427Vakta málsnúmer

Kynnt ráðning á Gunnari Rúnari Ólafssyni í starf aðstoðarslökkviliðsstjóra hjá Slökkviliði Akureyrar.

Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri sat fundinn undir þessum lið.

2.Vaðlaheiðargöng - samkomulag vegna búnaðar í göngunum

Málsnúmer 2018030360Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar undirritaður samningur, dagsettur 18. apríl 2018, við Vaðlaheiðargöng hf. um framlag til Slökkviliðs Akureyrar og Þingeyjarsveitar vegna Vaðlaheiðarganga.

Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri sat fundinn undir þessum lið.

3.Slökkvilið Akureyrar - Samningur um sjúkraflutninga við Sjúkratryggingar Íslands

Málsnúmer 2018040281Vakta málsnúmer

Lagður fram samningur við Sjúkratryggingar Íslands um sjúkraflutninga á þjónustusvæði heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri dagsettur 20. júní 2018. Samningurinn gildir frá 1. júní 2018 til og með 31. desember 2019.

Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti og vísar honum til afgreiðslu í bæjarráði.

4.Brunavarnaáætlun Slökkviliðs Akureyrar 2018 - 2022

Málsnúmer 2015120164Vakta málsnúmer

Lögð fram brunarvarnaáætlun fyrir Slökkvilið Akureyrar 2018 - 2022 dagsett 22. maí 2018.

Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri sat fundinn undir þessum lið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir brunarvarnaáætlunina.

5.Akursíða 2 og 4

Málsnúmer 2018060374Vakta málsnúmer

Lagt fram kauptilboð dagsett 19. júní 2018 í fimm íbúðir við Akursíðu 2-4 sem hafa verið í leigu frá árinu 2006 fyrir fatlað fólk. Kauptilboðið hljóðar upp á 120.500.000 krónur. Velferðarráð samþykkti kaupin á fundi sínum þann 20. júní 2018.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir kaupin á íbúðunum og að þau muni rúmast innan fjárfestingaráætlunar ársins 2018.

6.Sundlaug Akureyrar - endurnýjun á dúk í eldra laugarkari

Málsnúmer 2016060053Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 20. júní 2018 vegna endurnýjunar á dúk í eldra sundlaugarkari Sundlaugar Akureyrar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að fara í framkvæmdina.

7.Endurbætur í aðaleldhúsi ÖA

Málsnúmer 2014030072Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 20. júní 2018 vegna beiðni frá Hlíð um fjármögnun á endurbótum á afgreiðslulínu í matsal Hlíðar að upphæð 6 milljónir króna á árinu 2018. Velferðarráð samþykkti hækkun á leigu vegna framkvæmdanna á fundi sínum þann 6. júní 2018.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framkvæmdirnar með þeim fyrirvara að þær rúmist innan fjárfestingaráætlunar 2018.

8.Krossanesborgir - beiðni um snyrtingar á svæðið frá EBAK félagi eldri borgara á Akureyri

Málsnúmer 2018060432Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni frá EBAK félagi eldri borgara á Akureyri dagsett 28. maí 2018 um útisalerni í Krossanesborgum.
Umhverfis- og mannvirkjaráð þakkar fyrir erindið og samþykkir að farið verði í stefnumótun varðandi þjónustu á útivistarsvæðum í bæjarlandinu.

9.Sparkvellir við grunnskóla - endurnýjun á gervigrasi

Málsnúmer 2018060413Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 30. maí 2018 vegna opnunar tilboða í endurnýjun á gervigrasi á sparkvöllum við Oddeyrarskóla og Brekkuskóla.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að samið verði við lægstbjóðanda Metatron ehf.

10.Drottningarbrautarstígur - Leikhúsbrú

Málsnúmer 2017100322Vakta málsnúmer

Lögð fram stöðuskýrsla 2 dagsett 20. júní 2018 vegna framkvæmdanna.

Fundi slitið - kl. 10:10.