Stjórnsýslunefnd

6. fundur 29. september 2010 kl. 08:10 - 10:25 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Tryggvi Þór Gunnarsson formaður
  • Hlín Bolladóttir
  • Andrea Sigrún Hjálmsdóttir
  • Guðmundur Baldvin Guðmundsson
  • Ólafur Jónsson
Starfsmenn
  • Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri
  • Dagný Magnea Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss
  • Karl Guðmundsson bæjarritari
  • Gunnar Frímannsson fundarritari
Dagskrá

1.Stjórnsýslunefnd - starfsáætlun 2010-2014

Málsnúmer 2010090004Vakta málsnúmer

Framkvæmdastjórar stoðþjónustudeilda, Dagný M. Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss, Dan J. Brynjarsson fjármálastjóri, Halla M. Tryggvadóttir starfsmannastjóri og Jón Bragi Gunnarsson hagsýslustjóri, komu á fundinn til viðræðna um starfs- og fjárhagsáætlanir deildanna. Þeir gerðu nefndinni grein fyrir helstu verkefnum sem framundan eru í þessum deildum.

2.Fræðslunefnd - skipun nefndar 2010

Málsnúmer 2010090115Vakta málsnúmer

Samkvæmt erindisbréfi fræðslunefndar er það hlutverk stjórnsýslunefndar að skipa fulltrúa í fræðslunefnd fyrir kjörtímabilið 2010-2014.

Afgreiðslu frestað.

3.Siðareglur fyrir kjörna fulltrúa

Málsnúmer 2009090017Vakta málsnúmer

Aftur tekin til umræðu drög að siðareglum fyrir kjörna fulltrúa en afgreiðslu þeirra var frestað á síðasta fundi.

Stjórnsýslunefnd óskar eftir að fastanefndir taki drögin til umræðu og skili athugasemdum til nefndarinnar fyrir 15. nóvember nk.

4.Fundargerðir - verklagsreglur 2010

Málsnúmer 2010080032Vakta málsnúmer

Dagný M. Harðardóttir skrifstofustjóri Ráðhúss lagði fram tillögur um breytingar á verklagsreglum um fundargerðir. Fyrst og fremst er um að ræða aðlögun reglnanna að virkni nýja skjalakerfisins, OneSystems.

Stjórnsýslunefnd samþykkir verklagsreglurnar.

5.Hverfisnefndir og hverfisráð - fundargerðir

Málsnúmer 2007020100Vakta málsnúmer

Eftirtaldar fundargerðir eru lagðar fram til kynningar:
Fundargerð hverfisnefndar Holta- og Hlíðahverfis dags. 2. september 2010.
Fundargerðir hverfisráðs Grímseyjar dags. 24. og 31. ágúst 2010.
Fundargerð hverfisráðs Hríseyjar dags. 14. september 2010.

Fundi slitið - kl. 10:25.