Stjórn Akureyrarstofu

152. fundur 18. desember 2013 kl. 16:00 - 17:48 Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
Nefndarmenn
  • Halla Björk Reynisdóttir formaður
  • Helga Mjöll Oddsdóttir
  • Sigmundur Einar Ófeigsson
  • Helena Þuríður Karlsdóttir
  • Hildur Friðriksdóttir
  • Matthías Rögnvaldsson áheyrnarfulltrúi
  • Sigfús Arnar Karlsson áheyrnarfulltrúi
  • Unnsteinn Jónsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Þórgnýr Dýrfjörð fundarritari
Dagskrá

1.Samvinnuviðræður menningarstofnana - samstarf Leikfélags Akureyrar, Menningarfélagsins Hofs og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands.

Málsnúmer 2012090021Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga frá framkvæmdastjóra Akureyrarstofu og formanni stjórnar um framhald aðkomu Akureyrarbæjar að viðræðunum.

Stjórn Akureyrarstofu óskar eftir því við stjórnir félaganna þriggja að hver um sig skipi tvo fulltrúa í undirbúningsstjórn nýs félags sem hafi það að markmiði að taka að sér rekstur þeirra verkefna sem þau hafa með höndum. Stjórn Akureyrarstofu mun skipa tvo fulltrúa til að vinna með undirbúningsstjórninni og aðstoða við úrlausn þeirra verkefna sem upp koma.

2.Sjónlistamiðstöðin á Akureyri - skipulag og þróun

Málsnúmer 2012040129Vakta málsnúmer

Lögð fram áfanganiðurstaða vinnuhóps sem skipaður var á fundi stjórnarinnar þann 31. október sl. og fékk það hlutverk að yfirfara samþykktir og skipulag Sjónlistamiðstöðvarinnar.

Stjórn Akureyrarstofu felur framkvæmdastjóra Akureyrarstofu að auglýsa eftir nýjum forstöðumanni fyrir Sjónlistamiðstöðina á grundvelli þeirra hugmynda sem kynntar voru á fundinum. Jafnframt er vinnuhópnum falið að ljúka endurskoðun samþykktar fyrir stofnunina á sama grunni.

3.Sjónlistamiðstöðin á Akureyri - dagskrá 2014

Málsnúmer 2012040129Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar dagskrá Sjónlistamiðstöðvarinnar á árinu 2014.

4.Samningur um samstarf ríkis og Akureyrarbæjar um menningarmál 2013-2015

Málsnúmer 2013010068Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar minnisblað dags. 6. desember 2013 til mennta- og menningarmálaráðuneytisins þar sem óskað er eftir endurskoðun á fjárframlögum til samstarfssamningsins á grundvelli endurskoðunarákvæðis í honum.

5.Menningarfélagið Hof ses - ársreikningur

Málsnúmer 2011030188Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Menningarfélagsins Hofs ses fyrir starfsárið 2012-2013.

Stjórn Akureyrarstofu lýsir yfir ánægju með góðan og öruggan rekstur Menningarfélagsins Hofs.

6.Þrettándagleði Þórs 2014 - styrkbeiðni

Málsnúmer 2013120029Vakta málsnúmer

Styrkbeiðni dags. 22. nóvember 2013 frá Eiði Arnari Pálmasyni f.h. Íþróttafélagsins Þórs þar sem óskað er eftir styrk vegna Þrettándagleði Þórs 2014.

Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að styrkja verkefnið um kr. 150.000.

Fundi slitið - kl. 17:48.