Stjórn Akureyrarstofu

299. fundur 28. maí 2020 kl. 14:00 - 17:00 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Hilda Jana Gísladóttir formaður
  • Sigríður Ólafsdóttir
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Eva Hrund Einarsdóttir
  • Finnur Sigurðsson
  • Karl Liljendal Hólmgeirsson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Kristinn Jakob Reimarsson sviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
  • Þórgnýr Dýrfjörð deildarstjóri akureyrarstofu
Fundargerð ritaði: Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri Samfélagssviðs
Dagskrá
Sigríður Ólafsdóttir L-lista mætti í forföllum Önnu Fanneyjar Stefánsdóttur.

Í upphafi fundar óskaði formaður eftir afbrigðum frá útsendri dagskrá og taka inn á dagskrá mál nr. 2020050658, Viðburða- og vöruþróunarsjóður.
Var það samþykkt.

1.Áfangastaðaáætlun - fimm áhersluverkefni Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2020050631Vakta málsnúmer

Markaðsstofa Norðurlands hefur óskað eftir því að skilað verði inn lista yfir topp 5 áhersluverkefni sveitarfélagsins í tengslum við áfangastaðaáætlun Norðurlands. Er MN að kalla eftir samskonar upplýsingum frá öðrum sveitarfélögum á Norðurlandi sem svo verða sendar Ferðamálastofu.

Þórgnýr Dýrfjörð deildarstjóri Akureyrarstofu og María Helena Tryggvadóttir verkefnastjóri ferðamála gerðu grein fyrir málinu.

Hrísey og Grímsey, Glerárdalur, Glerárgil, Hlíðarfjall og Krossanesborgir voru meðal þeirra áfangastaða sem komu til umræðu og verkefni tengd hverjum og einum þeirra.

Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að fela starfsmönnum að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
Sigríður Ólafsdóttir mætti á fundinn kl. 14:30.

2.Samningur við Gilfélagið um leigu á Deiglunni

Málsnúmer 2020020492Vakta málsnúmer

Drög að samningi við Gilfélagið vegna leigu á Deiglunni lögð fram til umræðu.
Stjórn Akureyrarstofu felur starfsmönnum að klára drögin og leggja fram til samþykktar á næsta fundi.

3.Safnastefna Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2014110087Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað deildarstjóra Akureyrarstofu um stöðu vinnu við gerð safnastefnu.
Stjórn Akureyrarstofu leggur áherslu á að vinna við gerð stefnunnar verði lokið samhliða vinnu fjárhagsáætlunar 2021.

4.17. júní hátíðahöld

Málsnúmer 2015020072Vakta málsnúmer

Umræða um 17. júní hátíðahöldin. Þau verða með mjög breyttu sniði að þessu sinni og gerði deildarstjóri Akureyrarstofu grein fyrir þeim hugmyndum sem unnið er með og taka mið af þeim takmörkunum sem til eru komnar vegna COVID-19 faraldursins.

5.Iðnaðarsafnið á Akureyri

Málsnúmer 2004050105Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað sviðsstjóra vegna málsins. Áframhald umræðu frá síðasta fundi.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að óska eftir við bæjarráð að veittur verði viðauki að upphæð kr. 2.000.000 en heildarkostnaður við verkefnið er kr. 3.800.000.

6.Sigurhæðir - leiga húsnæðis

Málsnúmer 2019090404Vakta málsnúmer

Umræða um næstu skref varðandi leigu á Sigurhæðum.
Þar sem Hótel Akureyri hefur fallið frá tilboði sínu og ekki var búið að ganga frá samningi um leigu samþykkir stjórn Akureyrarstofu að fela deildarstjóra Akureyrarstofu að ganga til viðræðna við Kristínu Kjartansdóttur og Hlyn Hallsson sem áttu það tilboð sem metið var nr. 2 um leigu á Sigurhæðum.

7.Stjórn Akureyrarstofu - rekstraryfirlit 2020

Málsnúmer 2020040153Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar fjögurra mánaða rekstraryfirlit.

Karl Liljendal Hólmgeirsson vék af fundi kl. 16:35.

8.Samfélagssvið - starfsmannamál

Málsnúmer 2018110172Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar samantekt á yfirvinnu í hlutfalli við dagvinnu á kostnaðarstöðvum sem heyra undir stjórn Akureyrarstofu.

9.Viðburða- og vöruþróunarsjóður

Málsnúmer 2020050658Vakta málsnúmer

Óskað er eftir að stjórn Akureyrarstofu tilnefni fulltrúa, aðal- og varamann, í úthlutunarnefnd fyrir viðburða- og vöruþróunarsjóð.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að tilnefna Hildu Jönu Gísladóttur sem aðalmann í úthlutunarnefnd vöru- og starfsþróunarsjóðs og Finn Dúa Sigurðsson sem varamann.

Fundi slitið - kl. 17:00.