Skipulagsnefnd

181. fundur 11. júní 2014 kl. 08:00 - 10:00 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Helgi Snæbjarnarson formaður
  • Árni Páll Jóhannsson
  • Eva Reykjalín Elvarsdóttir
  • Edward Hákon Huijbens
  • Tryggvi Már Ingvarsson áheyrnarfulltrúi
  • Stefán Friðrik Stefánsson áheyrnarfulltrúi
  • Ragnar Sverrisson áheyrnarfulltrúi
  • Leifur Þorsteinsson staðgengill skipulagsstjóra
  • fundarritari
Fundargerð ritaði: Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
Dagskrá

1.Hafnarsvæði sunnan Glerár - deiliskipulagsbreyting Grímseyjargata 3 og Strýta

Málsnúmer 2014030057Vakta málsnúmer

Erindið var grenndarkynnt frá 21. maí og lauk 27. maí 2014 þar sem allir þeir sem grenndarkynninguna fengu hafa skilað inn samþykki sínu fyrir deiliskipulagsbreytingunni.
1) Norðurorka dagsett 27. maí 2014.
2) Polaris Seafood ehf. dagsett 27. maí 2014.
3) Vélsmiðjan Ásverk ehf. dagsett 27. maí 2014.
4) Ragna Ragnars dagsett 27. maí 2014.
5) Miðpunktur dagsett 27. maí 2014.
6) Búvís ehf. dagsett 27. maí 2014.

Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna á grundvelli 4. gr.-e "Samþykktar um skipulagsnefnd" og felur skipulagsstjóra að annast gildistöku hennar.

2.Naustahverfi, reitur 28 - beiðni um yfirtöku á innkeyrslu að lóðum við Krókeyrarnöf

Málsnúmer 2014050140Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 16. maí 2014 frá íbúum við Krókeyrarnöf 2, 4, 6, 8, 10, 16, 18 og 20. Farið er fram á að kvaðir um að eigendur húsanna sjái um heimreiðar að húsunum verði felldar niður.

Skipulagsnefnd hafnar erindinu þar sem um er að ræða innkeyrslur og bílastæði á einkalóðum.

3.Lækjargata 9a - fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi

Málsnúmer 2014060004Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. júní 2014 þar sem Halldór Arnarsson f.h. Trémáls ehf., kt. 580587-1199, sækir um breytingar á deiliskipulagi vegna fyrirhugaðra breytinga á húsi nr. 9a við Lækjargötu. Meðfylgjandi eru uppdrættir og myndir af breytingum.

Skipulagsnefnd óskar eftir samþykki Minjastofnunar Íslands á fyrirhuguðum breytingum í samræmi við ákvæði deiliskipulags svæðisins.

Erindinu er frestað.

4.Aðalstræti 12b - umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2012030262Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 20. maí 2014 þar sem Hjörleifur Hallgríms Herbertsson sækir um deiliskipulagsbreytingu með það í huga að hægt verði að byggja fjölbýlishús á lóðinni Aðalstræti 12b.

Skipulagsnefnd telur að ekki sé ástæða til að gera breytingar á núgildandi deiliskipulagi svæðisins þar sem nú þegar er heimild til staðar um uppbyggingu á lóðinni við Aðalstræti 12b.

Skipulagsnefnd hafnar því erindinu um breytingu á deiliskipulagi og vísar að öðru leyti til fyrri svara við fyrirspurninni.

5.Hlíðarfjallsvegur 15, KKA - umsókn um framkvæmdarleyfi

Málsnúmer 2014060024Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 27. maí 2014 þar sem Þorsteinn Hjaltason f.h. KKA Akstursíþróttafélags, kt. 420296-2319, sækir um framkvæmdarleyfi á lóð KKA við Glerárhóla og Torfdal.
Um er að ræða eftirtaldar framkvæmdir:
1) Fylla gíginn sem er vestan við svæðið.
2) Reisa tækjaskemmu norðan við félagsheimilið.
3) Reisa félagsheimili þar sem gígurinn er núna.
4) Setja upp aðstöðu fyrir keppnisfólk og áhorfendur á þeim stað sem er verið að fylla núna, þ.e. þar sem gígurinn er.
5) Gera hljóðmanir við Hlíðarfjallsveg.
6) Laga námurnar sem eru við Hlíðarfjallsveg, færa til efni og e.t.v. bæta við efni til að styrkja landið á bak við brekkuna ofan Torfdals.
7) Gera göng undir áætlaðan veg inn á skotsvæðið og aksturssvæði KKA.
8) Bæta við efni í akstursbrautir. Árlega þarf u.þ.b. 2000-2600 m3 af mold í brautir félagsins, hún kemur venjulega utan frá þ.e. ekki af svæðinu.

Skipulagsnefnd hefur yfirfarið meðfylgjandi gögn vegna framkvæmda á lóð KKA, sem er í samræmi við samþykkt aðal- og deiliskipulag og samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfisins á liðum 1, 5, 6, og 8 á grundvelli 4. gr.- g "Samþykktar um skipulagsnefnd".
1) Samþykkt.

2) Staðsetning tækjaskemmu skal vera í samræmi við gildandi deiliskipulag. Bent er á að um byggingarleyfiskylda framkvæmd er að ræða.

3) Staðsetning félagsheimilis skal vera í samræmi við gildandi deiliskipulag. Bent er á að um byggingarleyfiskylda framkvæmd er að ræða.

4) Um byggingarleyfiskylda framkvæmd er að ræða, m.a. vegna öryggissjónarmiða.

5) Samþykkt. Samkvæmt deiliskipulaginu er einnig gert ráð fyrir hljóðmön meðfram nýrri vegtengingu að Skotsvæði og svæði KKA. Bent er á að staðsetning og hæð hljóðmana skal vera í samræmi við gildandi deiliskipulag.

6) Samþykkt.

7) Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er ekki gert ráð fyrir undirgöngum undir nýjan veg að Skotsvæði og aksturssvæði KKA.

8) Samþykkt.
Framkvæmdir skulu vera í samræmi við 24. gr. Lögreglusamþykktar fyrir Akureyrarbæ en þar eru ákvæði um farmflutninga og hreinsun ökutækja áður en farið er inn á malbikaðar götur.  

6.Afgreiðslur skipulagsstjóra 2014

Málsnúmer 2014010005Vakta málsnúmer

Fundargerð dagsett 30. maí 2014. Lögð var fram fundargerð 494. fundar með fullnaðarafgreiðslum erinda. Fundargerðin er í 14 liðum.
Lagt fram til kynningar.

7.Afgreiðslur skipulagsstjóra 2014

Málsnúmer 2014010005Vakta málsnúmer

Fundargerð dagsett 5. júní 2014. Lögð var fram fundargerð 495. fundar með fullnaðarafgreiðslum erinda. Fundargerðin er í 13 liðum.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:00.