Skipulagsnefnd

151. fundur 30. janúar 2013 kl. 08:00 - 12:00 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Helgi Snæbjarnarson formaður
  • Árni Páll Jóhannsson
  • Eva Reykjalín Elvarsdóttir
  • Edward Hákon Huijbens
  • Pálmi Gunnarsson
  • Ragnar Sverrisson áheyrnarfulltrúi
  • Svava Þórhildur Hjaltalín áheyrnarfulltrúi
  • Pétur Bolli Jóhannesson skipulagsstjóri
  • Leifur Þorsteinsson fundarritari
Fundargerð ritaði: Leifur Þorsteinsson verkefnastjóri
Dagskrá

1.Giljahverfi, þjónustuíbúðir við Borgarbraut - deiliskipulagsbreyting

Málsnúmer 2012100043Vakta málsnúmer

Tillaga að deiliskipulagsbreytingu Giljahverfis var auglýst frá 28. nóvember 2012 til 9. janúar 2013. Samhliða var auglýst umhverfisskýrsla dagsett í október 2012 og minnisblað um hljóðvist við Borgarbraut frá Eflu dagsett 31. október 2012 auk breytingarblaðs um deiliskipulag Borgarbrautar-Vestursíðu, dagsett 27. október 2012.
Auglýsingar birtust í Dagskránni, Fréttablaðinu og Lögbirtingablaðinu auk þess sem gögnin voru aðgengileg á heimasíðu skipulagsdeildar, í þjónustuanddyri Ráðhúss Akureyrar og hjá Skipulagsstofnun.
Eftir auglýsingartíma var lögð fram endurskoðuð hljóðskýrsla frá Eflu dagsett 24. janúar 2013 vegna rangra niðurstaðna þar sem skýrslan hafði verið byggð á röngum forsendum um umferðartölur ofl. Í framhaldinu voru gerðar viðeigandi leiðréttingar á umhverfisskýrslu, dagsettri í janúar 2013.
8 athugasemdir bárust og er útdráttur úr þeim í fylgiskjali merktu "Giljahverfi, þjónustuíbúðir við Borgarbraut, athugasemdir og svör dags. 30.1.2013". Þar er einnig að finna innkomnar umsagnir.
Borist hefur tillaga frá nafnanefnd dagsett 11. janúar þar sem nefndin gerir það að tillögu sinni að lóðin og aðkoma hennar verði kennd við Borgarbraut og Giljahverfi og fái nafnið Borgargil.

Svör við athugasemdum koma fram í meðfylgjandi skjali merktu "Giljahverfi, þjónustuíbúðir við Borgarbraut, athugasemdir og svör dags. 30.1.2013".
Niðurstaða:
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan og nafn lóðaraðkomunnar verði samþykkt og skipulagsstjóra falið að annast gildistöku hennar.

2.Miðhúsabraut/Súluvegur - deiliskipulag

Málsnúmer 2012070028Vakta málsnúmer

Í framhaldi af bókun skipulagsnefndar dagsettri 31. október 2012 leggur skipulagsstjóri fram til kynningar fyrstu drög að tillögu að deiliskipulagi svæðis á mótum Miðhúsabrautar og Súluvegar að Þingvallastræti og Glerá. Tillagan er unnin af Árna Ólafssyni arkitekt, dagsett 30. janúar 2013.

Lagt fram til kynningar.

3.Miðhúsabraut/Súluvegur - beiðni um umsögn vegna olíuframleiðslu úr plasti

Málsnúmer 2013010059Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 18. desember 2012 þar sem Sigurður Ásbjörnsson f.h. Skipulagsstofnunar óskar eftir umsögn Akureyrarbæjar um hvort og á hvaða forsendum framleiðsla GPO ehf. á olíu úr plasti á lóð við Súluveg skuli háð mati á umhverfisáhrifum að teknu tilliti til 3. viðauka í lögum um mat á umhverfisáhrifum. Einnig er óskað eftir að fram komi í umsögninni hvaða leyfum framkvæmdin er háð hvað varðar starfssvið umsagnaraðila.

Skipulagsnefnd tekur undir umsögn Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra dagsetta 11. janúar 2013 þar sem m.a. kemur fram að um eimingu á landbúnaðarplasti sé að ræða (endurvinnslu) og að starfsemin sé því ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Framkvæmdin er háð byggingarleyfi þar sem um breytta notkun á húsnæði vegna starfseminnar er að ræða.

4.Athafnasvæði við Austursíðu - deiliskipulag

Málsnúmer 2012110215Vakta málsnúmer

Skipulagslýsing fyrir athafnasvæðið við Austursíðu var auglýst til kynningar 19. desember 2012. Lýsingin var aðgengileg í þjónustuanddyri Ráðhúss Akureyrar og á heimasíðu skipulagsdeildar.
Umsagnir bárust frá:
1) Norðurorku, dagsett 14. janúar 2013.
Athygli er vakin á að Norðurorka rekur dælustöð og spennistöð í Austursíðu 2 og liggja stofnlagnir veitna að þeirri lóð. Mikilvægt er að gera ráð fyrir mögulegum lagnaleiðum meðfram Hörgárbraut.
2) Skipulagsstofnun dagsett 4. janúar 2013.
Skipulagsstofnun gerir ekki athugasemd við lýsinguna.
Ábendingum um skipulagslýsingu er vísað í vinnslu deiliskipulags svæðisins.
Skipulagsstjóri leggur fram tillögu að deiliskipulagi fyrir athafnasvæðið við Austursíðu. Tillagan er unnin af Gísla Kristinssyni arkitekt, dagsett 11. janúar 2013, og kom hann á fundinn og kynnti tillöguna.

Skipulagsnefnd þakkar Gísla Kristinssyni arkitekt fyrir kynninguna.
Frestað.

5.Hrafnabjörg 1 - deiliskipulagsbreyting

Málsnúmer 2012050171Vakta málsnúmer

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar var grenndarkynnt frá 19. desember 2012 með athugasemdarfresti til 16. janúar 2013.
Engin athugasemd barst.

Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna á grundvelli 4. gr.-e "Samþykktar um skipulagsnefnd" og felur skipulagsstjóra að annast gildistöku hennar.

6.Rauðamýri 11 - umsókn um breytingu á deiliskipulagi

Málsnúmer 2012110021Vakta málsnúmer

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar var grenndarkynnt frá 19. desember 2012 með athugasemdarfresti til 16. janúar 2013.
Engin athugasemd barst.

Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna á grundvelli 4. gr.-e "Samþykktar um skipulagsnefnd" og felur skipulagsstjóra að annast gildistöku hennar.

7.Glerárgata 26-38 - bílastæði

Málsnúmer 2013010172Vakta málsnúmer

Erindi dags. 14. janúar 2013 frá Bjarna Hafþóri Helgasyni f.h. Fasteignafélagsins Klappa ehf. varðandi bílastæði við húsaröðina Glerárgötu 26-38. Óskað er eftir breytingu á því hvernig bifreiðum er lagt í aðreininni og einnig er óskað eftir breikkun á henni.

Skipulagsnefnd óskar eftir umsögn Vegagerðarinnar, framkvæmdaráðs og húseigenda við Glerárgötu 26-38 um tillöguna.

8.Hafnarstræti 80 - umsókn um lóð

Málsnúmer 2013010305Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 25. janúar 2013 þar sem Gísli Steinar Gíslason f.h. Norðurbrúar ehf., kt: 620113-0420, Kaldbaksgötu 1, sækir um lóðina nr. 80 við Hafnarstræti til að byggja hótel.

Skipulagsnefnd samþykkir erindið með fyrirvara um byggingarhæfi lóðarinnar. Deiliskipulagsskilmálar ásamt almennum byggingarskilmálum gilda.
Edward H. Huijbens óskar bókað að hann sitji hjá við afgreiðsluna.

9.Afgreiðslur skipulagsstjóra 2013

Málsnúmer 2013010008Vakta málsnúmer

Fundargerð dagsett 16. janúar 2013. Lögð var fram fundargerð 428. fundar með fullnaðarafgreiðslum erinda. Fundargerðin er í 11 liðum.

Lagt fram til kynningar.

10.Afgreiðslur skipulagsstjóra 2013

Málsnúmer 2013010008Vakta málsnúmer

Fundargerð dagsett 23. janúar 2013. Lögð var fram fundargerð 429. fundar með fullnaðarafgreiðslum erinda. Fundargerðin er í 6 liðum.

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 12:00.