Framkvæmdaráð

270. fundur 07. júní 2013 kl. 10:50 - 12:23 Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Oddur Helgi Halldórsson formaður
  • Sigríður María Hammer
  • Silja Dögg Baldursdóttir
  • Njáll Trausti Friðbertsson
  • Sigfús Arnar Karlsson
  • Guðgeir Hallur Heimisson áheyrnarfulltrúi
  • Kristín Þóra Kjartansdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Helgi Már Pálsson bæjartæknifræðingur
  • Tómas Björn Hauksson forstöðumaður gatna, fráveitu- og hreinlætismála
  • Jón Birgir Gunnlaugsson fundarritari
Dagskrá
Áheyrnarfulltrúi A-lista mætti ekki á fundinn.

1.Sumarvinna með stuðningi

Málsnúmer 2011020082Vakta málsnúmer

Lagðar fram tillögur um að auka vinnutímann um eina viku, þ.e. úr fjórum í fimm vikur, en færri einstaklingar eru skráðir nú í ár en gert var ráð fyrir.

Framkvæmdaráð samþykkir að fjölga vinnutímabilinu um eina viku.

2.Lausaganga katta - fyrirspurnir

Málsnúmer 2013030022Vakta málsnúmer

Eyjólfur Bjarnason mætti í viðtalstíma bæjarfulltrúa. Eyjólfur fylgdi eftir bréfi dags. 28. apríl 2013 sem hann sendi á alla bæjarfulltrúa og varðar lausagöngu katta í Furulundi. Bæjarráð vísaði á fundi sínum þann 16. maí sl. erindinu til framkvæmdadeildar.

Framkvæmdaráð hefur ekki í hyggju að endurskoða reglur um kattahald og bendir á að tillaga um bann við lausagöngu katta var felld í bæjarstjórn 1. mars 2011 með 10 atkvæðum gegn atkvæði Sigurðar Guðmundssonar A-lista.

Sigríður María Hammer L- lista sat hjá við afgreiðslu.

3.Snjómokstur og hálkuvarnir 2010-2012 - útboð

Málsnúmer 2010090064Vakta málsnúmer

Rætt um framtíðarfyrirkomulag á snjómokstri og möguleika á framlengingu núgildandi útboðs og/eða hugsanlegar breytingar.

Framkvæmdaráð samþykkir að framlengja samninga um eitt ár.

4.Langtímaáætlun - framkvæmdadeild

Málsnúmer 2013040051Vakta málsnúmer

Kynnt samantekt á málefnum í langtímaáætlun sem falla undir framkvæmdadeild. Áður á dagskrá bæjarráðs 16. apríl sl.

Framkvæmdaráð þakkar kynninguna.

5.Samgöngumiðstöð á Akureyri

Málsnúmer 2012090190Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar erindi frá Stefáni Baldurssyni forstöðumanni SVA dags. 23 maí 2013. þar sem hann beinir því til framkvæmdaráðs að skoðaðir verði möguleikar á að reist verði samgöngumiðstöð hér á Akureyri

6.Kirkjugarðar Akureyrar - ósk um aukið fjármagn

Málsnúmer 2013060029Vakta málsnúmer

Erindi frá Smára Sigurðsyni dags. 15. maí 2013. þar sem hann óskar eftir því að Akureyrarbær komi að greiðslu hluta kostnaðar í tengslum við framkvæmdir við Kirkjugarða Akureyrar.

Framkvæmdaráð felur Helga Má Pálssyni bæjartæknifræðingi að ræða við bréfritara.

Fundi slitið - kl. 12:23.