Lausaganga katta - fyrirspurnir

Málsnúmer 2013030022

Vakta málsnúmer

Framkvæmdaráð - 270. fundur - 07.06.2013

Eyjólfur Bjarnason mætti í viðtalstíma bæjarfulltrúa. Eyjólfur fylgdi eftir bréfi dags. 28. apríl 2013 sem hann sendi á alla bæjarfulltrúa og varðar lausagöngu katta í Furulundi. Bæjarráð vísaði á fundi sínum þann 16. maí sl. erindinu til framkvæmdadeildar.

Framkvæmdaráð hefur ekki í hyggju að endurskoða reglur um kattahald og bendir á að tillaga um bann við lausagöngu katta var felld í bæjarstjórn 1. mars 2011 með 10 atkvæðum gegn atkvæði Sigurðar Guðmundssonar A-lista.

Sigríður María Hammer L- lista sat hjá við afgreiðslu.