Snjómokstur og hálkuvarnir 2010-2012 - útboð

Málsnúmer 2010090064

Vakta málsnúmer

Framkvæmdaráð - 218. fundur - 01.10.2010

Opnun útboðs hefur verið frestað um 14 daga vegna athugasemda bjóðenda. Taka þarf ákvörðun um framvindu málsins.

Framkvæmdaráð tekur undir og samþykkir þær breytingar sem fram koma í minnisblaði frá verkfræðistofunni Mannviti dags. 29. september 2010.

Framkvæmdaráð - 219. fundur - 15.10.2010

Lagðar fram til kynningar niðurstöður vegna opnunar útboðs þann 14. október 2010.

Framkvæmdaráð - 253. fundur - 08.06.2012

Rætt var um fyrirkomulag á snjómokstri og möguleika á framlengingu núgildandi útboðs og hugsanlegar breytingar.

Framkvæmdaráð samþykkir að framlengja núverandi verksamninga um eitt ár.

Framkvæmdaráð - 270. fundur - 07.06.2013

Rætt um framtíðarfyrirkomulag á snjómokstri og möguleika á framlengingu núgildandi útboðs og/eða hugsanlegar breytingar.

Framkvæmdaráð samþykkir að framlengja samninga um eitt ár.