Fræðsluráð

47. fundur 15. mars 2021 kl. 13:30 - 16:00 Brekkuskóli
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Þorlákur Axel Jónsson
  • Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir
  • Rósa Njálsdóttir
  • Þórhallur Harðarson
  • Einar Gauti Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
  • Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar
  • Bryndís Björnsdóttir fulltrúi skólastjóra
  • Hafdís Ólafsdóttir fulltrúi leikskólakennara
  • Hanna Dóra Markúsdóttir fulltrúi grunnskólakennara
  • Hildigunnur Rut Jónsdóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna
  • Inda Björk Gunnarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra
  • Jóhann Gunnarsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna
  • Klaudia Jablonska varamaður fulltrúa ungmennaráðs
Fundargerð ritaði: Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
Dagskrá
Einar Gauti Helgason V-lista mætti í forföllum Þuríðar Árnadóttur.
Inda Björk Gunnarsdóttir fulltrúi leikskólastjóra mætti í forföllum Drífu Þórarinsdóttur.

1.Framtíðarsýn ungmennaráðs

Málsnúmer 2021030791Vakta málsnúmer

Fulltrúar ungmennaráðs, þær Rakel Alda Stefánsdóttir, Hildur Lilja Jónsdóttir og Thelma Þórhallsdóttir, komu á fundinn og ræddu framtíðarsýn þeirra á þróun skólastarfs. Helstu umræðuefnin snéru að mikilvægi upplýsingatækni og kennslu í henni, nemendalýðræði og að gefa nemendum tækifæri til að taka alvöru ákvarðanir, vera með fjölbreytta fræðslu um það sem kemur einstaklingum til góða eftir að skólagöngu lýkur s.s. fjármálalæsi eða stjórnmálafræðslu og höfða betur til nemenda út frá þeirra áhuga.

Hrafnhildur Guðjónsdóttir verkefnastjóri á samfélagssviði sat fundinn undir þessum lið.
Fræðsluráð þakkar fulltrúum ungmennaráðs fyrir erindið og lýsir ánægju sinni með vandaðan málflutning.

2.Samfella í skóla- og frístundastarfi barna

Málsnúmer 2019090401Vakta málsnúmer

Á 91. fundi frístundaráðs 24. febrúar 2021 var eftirfarandi bókun gerð: ,,Frístundaráð telur mikilvægt að haldið verði áfram með verkefnið (þ.e. útfærslu á frístundaakstri) og veitt verði fjármagn til þess að hægt sé að koma því af stað haustið 2021. Óskað er eftir afstöðu fræðsluráðs til málsins."

Hrafnhildur Guðjónsdóttir verkefnastjóri á samfélagssviði gerði grein fyrir aðdraganda verkefnisins og hugmyndum um fyrirkomulag á áætlun frístundavagns haustið 2021.
Fræðsluráð tekur jákvætt í erindið og lýsir vilja til að vinna að því, í samstarfi við samfélagssvið, að verkefnið hljóti brautargengi.

3.Rekstur fræðslusviðs 2021

Málsnúmer 2021030553Vakta málsnúmer

Forstöðumaður rekstrar gerði grein fyrir rekstrarstöðu málaflokksins í janúar 2021.

4.Sérúrræði í leikskólum - ósk um viðauka

Málsnúmer 2021023253Vakta málsnúmer

Erindið var tekið fyrir á 46. fundi fræðsluráðs til fyrri umræðu þar sem óskað var eftir viðauka vegna sérúrræða í leikskólum að upphæð kr. 40 milljónir.
Fræðsluráð samþykkir erindið og vísar því til bæjarráðs.

Fundi slitið - kl. 16:00.