Fræðsluráð

6. fundur 18. mars 2019 kl. 13:30 - 15:25 Fundarsalur 1. hæð Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Heimir Haraldsson
  • Hildur Betty Kristjánsdóttir
  • Rósa Njálsdóttir
  • Þórhallur Harðarson
  • Einar Gauti Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
  • Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar
Fundargerð ritaði: Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
Dagskrá
Ellý Dröf Kristjánsdóttir fulltrúi starfsfólks á leikskólum boðaði forföll.
Helen Birta Kristjánsdóttir fulltrúi foreldra í leikskólum sat fundinn í forföllum Ingunnar Högnadóttur.

1.Endurskoðun skólastefnu 2018

Málsnúmer 2017080125Vakta málsnúmer

Drög að endurskoðun á skólastefnu Akureyrarbæjar lögð fram tilkynningar og afgreiðslu.
Fræðsluráð vísar drögunum til kynningar í ráðum bæjarfélagsins.

Sviðsstjóra fræðslusviðs er falið að útbúa erindisbréf fyrir vinnuhóp vegna áframhaldandi vinnu við gerð skólastefnu og leggja fyrir næsta fund fræðsluráðs.

2.Rekstur fræðslumála 2019

Málsnúmer 2019030196Vakta málsnúmer

Árni K. Bjarnason forstöðumaður rekstrar kynnti stöðu rekstrar fræðslumála fyrir janúar og febrúar 2019.

3.Könnun á innleiðingu aðalnámskrár grunnskóla frá 2011 og 2013

Málsnúmer 2019030067Vakta málsnúmer

Erindi barst frá mennta- og menningarmálaráðuneyti dagsett 5. mars 2019 um könnun á innleiðingu aðalnámskrár grunnskóla.

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur hafið undirbúning á endurskoðun aðalnámskrár grunnskóla frá 2011 og 2013. Einn þáttur þeirrar endurskoðunar er könnun á því meðal grunnskóla hvernig gengið hefur að innleiða aðalnámskrá og til að afla upplýsinga um hvernig ráðuneytið getur í framtíðinni betur stutt við innleiðingu aðalnámskrár.

Naustaskóli er einn fjögurra skóla utan höfuðborgarsvæðisins sem valinn hefur verið til úttektar á hvernig til hefur tekist. Annars vegar verður send rafræn könnun til skólastjóra og hins vegar verður farið í vettvangsheimsókn.
Lagt fram til kynningar.

4.Ytra mat á grunnskólum 2015-2020

Málsnúmer 2015050045Vakta málsnúmer

Erindi barst frá Menntamálastofnun dagsett 1. mars 2019 þar sem óskað er eftir því að Naustaskóli sendi Menntamálastofnun, fyrir 20. mars 2019, tímasetta áætlun um hvernig brugðist verður við þeim tillögum og ábendingum sem fram koma í skýrslunni um ytra mat á skólanum. Skólastjóri hefur brugðist við erindinu og sent inn umbótaáætlun fyrir skólann.

Lagt fram til kynningar.

5.Lundarsel - lausar kennslustofur

Málsnúmer 2019030134Vakta málsnúmer

Fræðslusvið hefur óskað eftir að komið verði fyrir tveimur kennslustofum við leikskólann Lundarsel. Ef af verður munu stofurnar standa á lóð Lundarskóla en tengdar Lundarseli.
Fræðsluráð samþykkir erindið og vísar því til umhverfis- og mannvirkjasviðs til frekari úrvinnslu.

6.Brúum bilið - vinnuhópur

Málsnúmer 2018120163Vakta málsnúmer

Formaður fræðsluráðs gerði grein fyrir stöðu vinnunnar í starfshópnum Brúum bilið.

7.Framkvæmd viðmiðunarstundarskrár grunnskólans

Málsnúmer 2019030180Vakta málsnúmer

Erindi frá Jóni Baldvin Hannessyni skólastjóra Giljaskóla barst þann 21. febrúar 2019 þar sem óskað er eftir því að fræðsluráð taki afstöðu til óska íþróttafélaga og annarra aðila um undanþágu frá viðmiðunarstundaskrá fyrir grunnskólanemendur vegna íþróttaæfinga og annarrar tómstundaiðkunar.
Afstaða fræðsluráðs er skýr hvað varðar skólasókn grunnskólanemenda.

Samkvæmt lögum ber börnum á grunnskólaaldri skylda að mæta í skólann í 180 daga á ári. Í aðalnámskrá grunnskóla frá árinu 2011 er kveðið á um að skólastjóra sé heimilt að veita tímabundin leyfi frá skólavist með samþykki foreldra, viðurkenna nám sem er stundað utan grunnskóla eða meta þátttöku s.s. í íþróttastarfi eða félagslífi sem nám í valgreinum á unglingastigi. Skólastjórum er ekki heimilt að veita viðvarandi heimildir fyrir undanþágu frá skólasókn utan þess sem tiltekið er í 16. kafla aðalnámskrár.

Fræðsluráð leggur ríka áherslu á að skólastjórar fylgi ákvæðum aðalnámskrár sem eru skýr hvað þetta varðar.

Jafnframt vísar fræðsluráð ofangreindri bókun til frístundaráðs til umræðu og kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:25.