Fræðsluráð

21. fundur 19. nóvember 2018 kl. 13:30 - 15:45 Fundarsalur 1. hæð Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Heimir Haraldsson
  • Hildur Betty Kristjánsdóttir
  • Rósa Njálsdóttir
  • Þórhallur Harðarson
  • Þuríður Sólveig Árnadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
  • Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar
Fundargerð ritaði: Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
Dagskrá

1.Opnunartími frístundar

Málsnúmer 2018100271Vakta málsnúmer

Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs kynnti hvernig opnunartímum frístundar er háttað.
Fræðsluráð undirstrikar mikilvægi þess að samþykktu fyrirkomulagi á opnunartímum í frístund verði fylgt.

2.Leikskólar - starfsáætlanir 2014-2020

4.Rekstur fræðslumála 2018

Málsnúmer 2018030030Vakta málsnúmer

Staða rekstrar fræðslumála frá janúar til september 2018 lögð fram til kynningar.

5.Skólaval grunnskóla 2015-2020

Málsnúmer 2017010171Vakta málsnúmer

Samþykktar reglur Akureyrarbæjar um skólaval lagðar fram til kynningar.
Fræðsluráð felur sviðsstjóra fræðslusviðs að koma með tillögu að endurskoðun á reglunum um skólaval á næsta fund ráðsins.

6.Vinaliðaverkefni í Lundarskóla - ósk um að verkefnið verði tekið upp

Málsnúmer 2018100393Vakta málsnúmer

Erindi hefur borist frá Arnrúnu Höllu Arnórsdóttur um að Vinaliðaverkefnið verði tekið upp í Lundarskóla.

Aðalmarkmið Vinaliðaverkefnisins er að vinna gegn einelti með því að bjóða upp á jákvæða afþreyingu á skólalóðinni í frímínútum. Verkefnið hvetur til hreyfingar í gegnum leik og nemendur fá tækifæri til að þjálfa upp leiðtogafærni með virkri þátttöku.

Fræðsluráð þakkar Arnrúnu áhugavert erindi og fer þess á leit við skólastjóra Lundarskóla að svara því.

7.Mötuneytismál grunnskóla Akureyrarbæjar

Málsnúmer 2018110016Vakta málsnúmer

Rósa Njálsdóttir M-lista óskaði eftir umræðu um fæðismál grunnskólanna.
Fulltrúar M-lista, D-lista og V-lista lögðu fram eftirfarandi bókun:

Miðflokkur, Sjálfstæðisflokkur og VG leggja til að fræðslusvið reikni út hvað það kosti að bjóða grunnskólabörnum, þeim sem það kjósa, upp á fría ávexti og mjólk í einn mánuð, janúar 2019, og vísi þeim útreikningum til bæjarráðs til umfjöllunar og afgreiðslu.



Erindinu er hafnað af meirihluta fræðsluráðs.

8.Frestun fundar í fræðsluráði

Málsnúmer 2018110196Vakta málsnúmer

Þuríður S. Árnadóttir V-lista lagði fram eftirfarandi bókun:

Fulltrúi VG harmar hve seint boð var sent út um frestun fundar þann 5. nóvember sl. en aðeins 51 mínútu fyrir fund barst afboðun í tölvupósti. Fulltrúi VG mætti á fundarstað ásamt öðrum fulltrúa sem ekki hafði heldur séð afboðunina. Mikilvægt er að taka tillit til þess að nefndarfólk þarf í sumum tilfellum að skipuleggja fundarsetu langt fram í tímann vegna vinnu og æskilegt hefði verið að fá afboðið minnst 4 klst. fyrir áætlaðan fundartíma. Samkvæmt lögmanni bæjarins hefði verið æskilegt að fá samþykki allra fundarmanna þegar til stóð að fresta fundi en hún segir þó engar reglur vera til um slíkt.



Fulltrúar meirihluta fræðsluráðs lögðu fram eftirfarandi bókun:

Röð atvika varð til þess að fundi var frestað með skömmum fyrirvara þann 5. nóvember sl. Heyrir slíkt til undantekninga og er beðist afsökunar á því að þetta hafi gerst.

Fundi slitið - kl. 15:45.